Skip to content

Fréttir

Árshátíð spretts

Árshátíð Spretts verður 4.nóv næstkomandi. Hvetjum Sprettara til þess að taka kvöldið frá. Fordrykkur, veisluborðahald. Létt dagskrá, verðlaunaafhendingar og dansleikur. Öll nánari dagskrá og miðasala verður auglýst þegar nær dregur.

Þjálfaramenntun allra stiga haustönn 2023

Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 25. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1.  stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir  allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi  sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.  Skráning fer fram á Sportabler:  https://www.sportabler.com/shop/isi Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í… Read More »Þjálfaramenntun allra stiga haustönn 2023

Niðurstöður Metamóts 2023

Um nýliðna helgi fór fram árlegt Metamót Spretts. Þrátt fyrir slæma veðurspá létu keppendur í A og B flokkum það ekki á sig fá og mættu galvaskir í braut á föstudag, keppendur í A-flokki áhugamanna fundu hvað verst fyrir veðrinu en eins og áður sagði létu þeir það ekki á sig fá og fóru mikinn á brautinni. Veðrið bæði laugardag og sunnudag var fínt og… Read More »Niðurstöður Metamóts 2023

Dagskrá Metamóts Spretts 2023

Eftir miklar vangaveltur og yfirlegu vegna slæmrar veðurspár um helgina þá hefur Metamótsnefnd Spretts gert nýja dagskrá. Biðjum alla keppendur að fylgjast vel með á Kappa vegna þess að dagskrá gæti breyst vegna veðurs. Allir ráslistar birtast í Kappa og biðjum fólk að fylgjast vel með þeim. Allar afskráningar eða breytingar fara fram í gegnum motanefnd@sprettarar.is Föstudagur 1. september 13:00 A-Flokkur atvinnumanna14:20 B-Flokkur atvinnumanna15:50 B-Flokkur… Read More »Dagskrá Metamóts Spretts 2023

Síðasti skráningardagur í dag, 27. 8 á Metamót Spretts 2023

Mótið fer fram á Samskipavellinum 1.-3. september. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng, skráningargjöld eru 7000kr pr grein, skráning verður opin til miðnættis sunnudagsins 27.ágúst. 28.8 – 30.8 mun hver skráning kosta 10.000kr Á mótinu verður boðið upp á opinn flokk og áhugamannaflokk.Keppt verður í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk).Boðið verður uppá Gæðingatölt í opnum flokki og áhugamannaflokki.Einnig verður… Read More »Síðasti skráningardagur í dag, 27. 8 á Metamót Spretts 2023

Drög að dagskrá Metamóts

Nú styttist óðfluga í hið stórskemmtilega Metamót Spretts Mótið fer fram á Samskipavellinum 1.-3. september. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng, skráningargjöld eru 7000kr pr grein, skráning verður opin til miðnættis sunnudagsins 27.ágúst. 28.8 – 30.8 mun hver skráning kosta 10.000kr Á mótinu verður boðið upp á opinn flokk og áhugamannaflokk.Keppt verður í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk).Boðið verður… Read More »Drög að dagskrá Metamóts

Frumtamninganámskeið

Róbert Petersen reiðkennari verður með vinsælu frumtamningarnámskeiðin sín í Spretti í haust. Námskeiðið hefst mánudaginn 2.október 2023 og er fyrsti tíminn bóklegur tími á 2.hæð Samskipahallarinnar, þar sem allir hóparnir mæta á sama tíma kl.18:00.Verklegir tímar hefjast svo þriðjudaginn 3.október og þá kemur hver þátttakandi með sitt trippi. Í boði verða tímasetningar kl.17-18, 18-19, 19-20 og 20-21.  Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu þætti… Read More »Frumtamninganámskeið

Námskeiðahald og fræðsla

Dagskrá námskeiðahalds og fræðslu fyrir haustmánuði (okt – des) á vegum Spretts verður kynnt á næstu dögum. Það verður margt um að vera líkt og áður. Allar hugmyndir frá félagsmönnum um hvað þeir vilja sjá og læra eru vel þegnar og má gjarnan senda á fraedslunefnd@sprettarar.is Námskeiðahald og fræðsla mun fara af stað í október og mun Róbert Petersen ríða á vaðið með sínum vinsælu… Read More »Námskeiðahald og fræðsla

Pláss í félagshesthúsi Spretts

Félagshesthús Spretts er staðsett neðst í Heimsenda, í húsinu eru 5-6 pláss fyrir unglinga sem langar að stíga sín fyrstu skref í að halda hest. Húsið er hugsað fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-18 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku og hafa ekki tengingu inn í hesthús hjá fjölskyldu eða vinum. Við hvetjum þau sem eru með pláss í hesthúsinu… Read More »Pláss í félagshesthúsi Spretts