Skip to content

Frumtamninganámskeið

Róbert Petersen reiðkennari verður með vinsælu frumtamningarnámskeiðin sín í Spretti í haust. Námskeiðið hefst mánudaginn 2.október 2023 og er fyrsti tíminn bóklegur tími á 2.hæð Samskipahallarinnar, þar sem allir hóparnir mæta á sama tíma kl.18:00.
Verklegir tímar hefjast svo þriðjudaginn 3.október og þá kemur hver þátttakandi með sitt trippi. Í boði verða tímasetningar kl.17-18, 18-19, 19-20 og 20-21. 

Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s:
-Atferli hestsins
-Leiðtogahlutverk
-Fortamning á trippi
-Undirbúningur fyrir frumtamningu
-Frumtamning

Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: 3x í viku – mánudagar, þriðjudagar og fimmtudagar í 4 vikur
Staðsetning: Samskipahöllin, hólf 1
Verð: 58.000.-

Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12-16 þátttakendur (3-4 hópar).
Bóklegur tími verður sameiginlegur fyrir allan hópinn og verður haldinn kl.18 mánudaginn
2.október á 2.hæð Samskipahallarinnar, allir hóparnir mæta á sama tíma í bóklegan tíma.
Verkleg kennsla verður í Samskipahöllinni, byrjað verður frammi í rennunni og svo færist
námskeiðið inn í reiðhöllina, hólf 1. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Námskeiðið er opið fyrir alla félaga í hestamannafélögum.

Skráning fer fram á Sportabler, sjá hér; https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjE1NDQ=