Bókanir og beiðnir
Smellið á örina til að opna viðkomandi bókunarform
Skráning í eða úr félaginu
Gerast félagsmaður eða afskrá úr félaginu
Panta reiðhallarlykla
Reiðhallarlyklar
Félagsmenn Spretts, skuldlausir við félagið eiga kost á að kaupa aðgang að reiðhöllum félagsins og skulu notendur vera skráðir fyrir sínum lykli.
Lágmarksáskrift á reiðhallarlykli eru 3 mánuðir.
Almennur reiðhallalykill er opinn virka daga frá klukkan 6:15-8:30 og frá kl. 12-23:50 um helgar frá 6:15-23:50
Árs reiðhallarlykill verður opinn 6:15-23:50 alla daga.
Fjölskyldulykill gildir fyrir hjón/pör og börn þeirra undir 18 ára aldri. Skilyrði er að allir þeir sem nýta sér fjölskyldulykilinn séu skuldlausir félagsmenn í Spretti.
Verðskrá fyrir lykla frá 1. Desember 2026
Stofngjald fyrir hvern útgefin reiðhallarlykil er 5.000kr.
Lykill 3 mánuðir: 15.400kr
Lykill 6 mánuðir: 25.300kr
Árslykill 12 mánuðir: 33.000kr
Fjölskyldulykill 12 mánuðir: 50.600kr (aðeins er um að ræða einn lykil)
Virkjun og kaup á reiðhallarlyklum skal fara fram í gegnum neðangreint form:
Panta tíma í reiðhöllum Spretts
Bókun á reiðhöllum Spretts
Bókanir á einkatímum í reiðhöllum Spretts fer fram með því að fylla út formið hér að neðan.
Í boði er að bóka lausa tíma:
Öll Húsasmiðjuhöll
Eitt hólf í Samskipahöll
Alla Samskipahöllina virka daga milli kl.6-12 á morgnanna og milli kl.22-00 á kvöldin
Alla Samskipahöllina um helgar milli kl.6-9 á morgnanna og kl.20-00 á kvöldin
Hægt er að bóka í lágmark klukkustund alla Samskipahölllina en Húsasmiðjuhöllina og stök hólf í Samskipahöllinni í lágmark hálftíma.
Bóka verður tíma í reiðhöllum með lágmarks 5 virkra daga fyrirvara.
Ein klukkustund í einu hólfi í Samskipahöllinni kostar 8.000 kr.
Ein klukkustund í allri Húsasmiðjuhöllinni kostar 10.000 kr.
Ein klukkustund í allri Samskipahöllinni kostar 30.000 kr
Ofangreind verð eiga einungis við fyrir hestatengda viðburði. Ef fólk ætlar að fá til sín kennara í einkatíma verður fólk að leigja sér pláss óheimilt er að vera með reiðkennara með sér á opnum almennum tíma reiðhallanna.
