Reglur í reiðhöllum Spretts

Notkun reiðhallar er einungis fyrir þá sem eru skuldlausir félagsmenn Spretts og greitt hafa sérstaklega fyrir aðgang að reiðhöll.
Börn 12 ára og yngri skulu vera í fylgd með forráðamanni.

Virða skal þá tíma sem skráðir eru, sjá dagatal hér til hliðar.

Ekki er leyfilegt að stúka af hólf í reiðhöll nema bil hafi verið leigt sérstaklega.

1. Hjálmaskylda er í reiðhöllinni.
2. Knapar hirði upp eftir hesta sína og sjálfa sig.
3. Sýna skal öðrum knöpum tillitsemi og virðingi.
4. Farið skal á bak inni á miðjum velli en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
5. Hægri umferð gildir.
6. Fet er riðið a innri sporaslóð, hraðari gangtegundir á ytri sporaslóð.
7. Tvær hestlengdir skulu skulu vera á milli hesta.
8. Knapi sem ríður bauga, á hringnum eða aðrar reiðleiðir inni á velli skal veita þeim forgang sem ríður allan völlinn á sporaslóð.
9. Ekki skal stöðva hest (eða standa) á ystu sporaslóð.
10. Hringtaumsvinna skal víkja fyrir þjálfun í reið.

Scroll to Top