Skip to content

Þjálfaramenntun allra stiga haustönn 2023

Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 25. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1.  stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir  allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi  sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. 

Skráning fer fram á Sportabler: 

https://www.sportabler.com/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir  sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“. 

Námskeiðsgjald:  

1. stig kr. 36.000.- 

2. stig kr. 30.000.- 

3. stig kr. 40.000.- 

Þjálfarar sem koma frá Fyrirmyndarfélögum ÍSÍ fá kr. 5000.- í afslátt. 

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514- 4000 & 863-1399 og/eða á vidar@isi.is 

Dæmi um svör frá nemendum í fjarnámi ÍSÍ þegar þeir voru spurðir út í helstu kosti námsins: 

„Mjög vel sett upp, skiljanlegt, aðgengilegt og áhugavert” 

„Fannst þetta bara frábært” 

„Vel skipulagt og alltaf hægt að fá svör frá kennara ef eitthvað er óljóst” „Allt kom skýrt fram, farið ítarlega í efnið og verkefnin voru hæfilega erfið”

„Ótrúlega fjölbreytt og skemmtilegt nám, komið inn á marga þætti sem ég hafði t.d. ekki  pælt mikið í ” 

„Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn” 

„Mér fannst það ýta undir gagnrýna hugsun og kenndi mér ýmislegt hagnýtt sem hefur nýst  mér í þjálfarastarfinu” 

„Góðir kennarar og vel valið efni” 

„Farið vel yfir langflesta þætti sem snúa að þjálfun” 

„Þetta er mjög hagnýtt nám fyrir þjálfun” 

„Það er alhliða og hefur ólíkar nálganir” 

„Vel skipulagt og skýr áætlun” 

„Gott skipulag, gott kennsluefni og kennarinn er fljótur til svars þegar maður þurfti hjálp“ „Mjög margir, get ekki þulið þá alla upp“