Skip to content

Síðasti skráningardagur í dag, 27. 8 á Metamót Spretts 2023

Mótið fer fram á Samskipavellinum 1.-3. september.

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng, skráningargjöld eru 7000kr pr grein, skráning verður opin til miðnættis sunnudagsins 27.ágúst.

28.8 – 30.8 mun hver skráning kosta 10.000kr

Á mótinu verður boðið upp á opinn flokk og áhugamannaflokk.
Keppt verður í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk).
Boðið verður uppá Gæðingatölt í opnum flokki og áhugamannaflokki.
Einnig verður boðið upp á keppni í tölti T3, 1.flokki og 2.flokki.

Fyrirtækjatöltið verður á sínum stað.

Að sjálfsögðu verða skeiðkappreiðar að venju og keppt verður í 100m fljúgandi ljósaskeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.

Aldurstakmark er í keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk.

Meðfylgjandi er tengill á viðburð mótsins á Facebook https://fb.me/e/SANGmzrq

Allar afskráningar eða fyrirspurnir fara fram í gegnum motanefnd@sprettarar.is