Skip to content

Fréttir

Sérkjör fyrir sprettara hjá Olís

Kæri meðlimur í hestafélaginu Sprettur  og ÓB Það er okkur mikil ánægja að tilkynna þér að hér að neðan sérskjör þín hjá Olís Sérkjör meðlima Spretts:  • 14 króna afsláttur af eldsneytislítranum á öllum stöðvum Olís og ÓB, nema þeim sjö sem alltaf bjóða fastlágt verð án annarra afsláttarkjara, sem eru ÓB stöðvarnar við Arnarsmára, Bæjarlind, Fjarðarkaup, Hamraborg, Skúlagötu, Hlíðarbraut Akureyri og á Selfossi.  •… Read More »Sérkjör fyrir sprettara hjá Olís

Kórreið Sprettskórsins

Kórreið Sprettskórsins verður 4 maí. Ætlum að hittast við Samskipahöllina kl. 13:30, þar ríðum við svo í Gjáréttir, stoppum þar og tökum lagið og vætum kanski kverkarnar. Frá Gjáréttum ríðum við svo til baka þegar hvíldartíminn er liðinn. Í stórkostlegu umhverfi getum við farið margar leiðir til baka í Sprettshverfið. Sjáumst hress Sprettskórinn.

Merktir jakkar fyrir unga Sprettara

Æskulýðsnefnd í samráði við yngri flokka ráð Spretts ætla að bjóða öllum ungum Spretturum að kaupa sérmerktan TopReiter vindjakka. Jakkinn verður merktur með nafni, Spretti ásamt nokkrum styrktaraðilum. Við nýtum því tækifærið hér með og auglýsum eftir styrktaraðilum sem vilja styrkja unga Sprettara! Áhugasamir sendi póst á aeskulydsnefnd@sprettarar.is Jakkarnir eru léttir, flottir og þægilegir og ættu að nýtast vel allt árið um kring þar sem… Read More »Merktir jakkar fyrir unga Sprettara

Myndir frá þrautabrautardegi

Þrautabrautar – og leikjadagur ungra Sprettara fór fram laugardaginn 20.apríl síðastliðinn. Þátttaka var mjög góð og tæplega 50 ungir Sprettarar mættu til leiks. Dagurinn byrjaði á þrautarbrautarkeppni þar sem knapar riðu í gegnum braut og leystu ýmis verkefni og þrautir. Skipt var í hópa eftir aldri og þegar allir hópar höfðu lokið keppni var boðið til grillveislu og blásið í hoppukastala við mikinn fögnuð ungra… Read More »Myndir frá þrautabrautardegi

Skráningafrestur framlengdur á WR íþróttamót Spretts

Opið WR íþróttamót Spretts verður haldið 1-5. Maí næstkomandi á félagssvæði Spretts.Skráningarfrestur hefur verið framlengdur til kl 21 í kvöld 29.04 Skráningargjöld fyrir T1, T2, V1, F1 í meistaraflokki og ungmennaflokki eru 8.000 kr. Skráningargjöld í fullorðins og ungmennaflokki aðrar greinar eru 7.000 kr. Skráningargjöld fyrir unglinga og börn eru 5.500 kr. Mótshaldari áskilur sér rétt að sameina flokka eða fella niður ef dræm þáttataka… Read More »Skráningafrestur framlengdur á WR íþróttamót Spretts

Einkatími Anton Páll

Einkatími með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni miðvikudaginn 15.maí. Um er að ræða einn einkatíma, 45mín Kennt verður í Húsasmiðjuhöll. Kennsla fer fram milli kl.8-16. Verð er 17500kr fyrir fullorðna. Skráning fer fram á sportabler.com og er opin; https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjkwMzQ= Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 14500kr. Sjá ákveðnar tímasetningar… Read More »Einkatími Anton Páll

Hestaíþróttir yngri flokkar

Boðið verður upp á námskeið fyrir börn og unglinga og er ætlað þeim sem vilja sækja almennt reiðnámskeið þar sem farið verður yfir undirstöðuatriði í reiðmennsku. Námskeiðið hentar einnig fyrir þau sem hafa sótt pollanámskeið og vilja stíga næsta skref í sinni reiðmennsku. Miðað er við að nemendur geti stjórnað sínum hesti sjálf og riðið á tölt/brokk hraða. Viðmiðunaraldur er 7 til 14 ára. Skipt… Read More »Hestaíþróttir yngri flokkar

Helgarnámskeið hjá Antoni Páli

Anton Páll Níelsson reiðkennari verður með helgarnámskeið 11.-12.maí í Samskipahöllinni. Í boði eru tímar frá kl.9-17. Kennt verður í 45mín einkatímum hvorn dag fyrir sig. Verð er 35.000kr. Skráning er opin og fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur. https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjkwMzE= Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 29.000kr. Fyrir nánari upplýsingar er… Read More »Helgarnámskeið hjá Antoni Páli