Skip to content

Fréttir

Opið Íþróttamót Spretts 4.-8.maí

Skráning á mótið er opin og mun standa til miðnættis föstudaginn 29. apríl. Bætt hefur verið við flokkum í ungmennaflokkivegna fyrirspurna.Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Sprettur áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.Boðið verður uppá eftirfarandi flokka og keppnisgreinar:Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Tölt T3 – Tölt T7Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 –… Read More »Opið Íþróttamót Spretts 4.-8.maí

SÚPUFUNDUR MEÐ FRAMSÓKN

Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Kópavogi bjóða Spretturum í kjötsúpu og öl í Arnarfelli Samskipahöllinni fimmtudaginn 28. apríl kl. 19:00. Þarna gefst kjörið tækifæri til að ræða við væntanlegt bæjarstjórnarfólk um hugðarefni sín og áframhaldandi uppbyggingu á Kjóavöllum. Vonumst til að sjá sem flesta við lok hreinsunardagsins mikla. Framsóknarflokkurinn

Ráslisti æfingamóts í fimmgangi

Hér er ráslisti dagsins. Mótið hefst kl 17:30 Fimmgangur F2 Fullorðinsflokkur – 1. flokkur 1 1 V Sunna Sigríður Guðmundsdóttir 1 – Rauður Máni Muggur hinn mikli frá Melabergi Vindóttur/bleikeinlitt 8 Máni Gunnhildur Gunnarsdóttir Kappi frá Sturluhóli Millý frá Feti2 1 V Rikke Jepsen 2 – Gulur Sprettur Kiljan frá Korpu Rauður/milli-einlitt 6 Sprettur Guðlaugur Birnir Ásgeirsson Konsert frá Hofi Snædís frá Selfossi3 2 H… Read More »Ráslisti æfingamóts í fimmgangi

Kvennareið 2022 – Sörli býður heim

  Loksins verður kvennareið Sörla og Spretts föstudaginn 29.apríl. Sörlakonur eru gestgjafar í ár. Við leggjum af stað frá Sörlastöðum kl.17.00 og ríðum til móts við Sprettskonur. Við hittum þær í Gjárétt, ríðum svo aftur að Sörlastöðum þar sem tekið verður á móti okkur með dýrindis mat og skemmtun! Athugið að það þarf að skrá sig í matinn á netfang kvennadeild@sorli.is fyrir 27. april. Verð… Read More »Kvennareið 2022 – Sörli býður heim

Rýming malarplans vestan við Markaveg

Sprettarar vinsamlega athugið!! Vegna sveitarstjórnarkosninga 14. maí næstkomandi og tónleika Andrea Bocelli í Kórnum þann 21. maí er þörf á að nýta bílastæðin vestan við Markaveg fyrir kjósendur og gesti í Kórnum þessa daga. Undirbúa þarf svæðið áður en til þessa atburða kemur og því er óskað eftir því að hestamannafélagið Sprettur komi því áfram á sína félagsmenn að fjarlægja kerrur og annað sem þeim… Read More »Rýming malarplans vestan við Markaveg

Litli rekstarhringurinn, áminning um notkun

Af gefnu tilefni þurfum við að setja skýrar reglur um hvenær megi reka hross á gamla gæðingavellinum í Spretti. Undanfarið hafa okkur borist of margar kvartanir vegna óþæginda sem reiðmenn verða út af hlaupandi hrossum á hringnum. Leyfilegt er að reka alla daga frá kl 6:00-12:00 og frá kl 20:00-23:00. Stranglega bannað er að nota bílflautur eða annan hávaða þegar hrossin eru rekin. Gæta skal… Read More »Litli rekstarhringurinn, áminning um notkun

Hreinsunardagur Spretts 28.apríl

Næstkomandi fimmtudag 28.apríl verður hreinsunardagur Spretts. Hittumst við Samskipahöllina kl 17:00, náum okkur í poka og röltum af stað. Við hvetjum félagsmenn til að þess að bíða með útreiðar og taka höndum saman og ganga um svæðið okkar og týna rusl, raka reiðvegina og laga til það sem betur má fara, ruslapokar og áhöld verða til staðar. Á sama tíma ætlum við líka að laga… Read More »Hreinsunardagur Spretts 28.apríl

Viðrunarhólf sumarið 2022

Gleðilegt sumar  Nú þegar sól hækkar á lofti er gott að koma hrossunum okkar í útiveru yfir daginn, við erum svo lánsöm að hafa góð græn svæði til umráða hjá okkur hér í Spretti. Eitt þeirra er Básaskarð, annað er við gamla Andvaravöllinn, og þriðja svæðið er vestan við Samskipahöll. Hólf á þessum svæðum eru ætluð til útiveru hrossa okkar yfir daginn. Ekki er leyfilegt… Read More »Viðrunarhólf sumarið 2022

Firmamót Spretts 2022

Takið fimmtudaginn 21.apríl frá.  Firmakeppni Spretts er ein af mikilvægustu tekjuleiðum félagsins og þó fyrirvarinn sé stuttur þá ætlum við í mótanefnd Spretts ásamt Bödda og félögum að blása til sóknar fyrir félagið okkar og safna saman styrkjum og halda skemmtilegt mót.  Þeir/þær sem vilja styrkja mótið er bent á að hafa samband við Bödda í síma 897-7517 eða Sverri 896 8242 Skráningargjöld á firmakeppni… Read More »Firmamót Spretts 2022

Opið Íþróttamót Spretts verður samkvæmt dagskrá 4.-8.maí

Skráning á mótið er opin og mun standa til miðnættis laugardaginn 29. apríl.Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Sprettur áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka. Það er mikil vinna sem liggur að baki undirbúningi og framkvæmd íþróttamótsins. Flest vinum við þetta í sjálfboðavinnu og með glöðu geði. Hins vegar viljum í nefndinni fara fram á að… Read More »Opið Íþróttamót Spretts verður samkvæmt dagskrá 4.-8.maí