Skip to content

Kvennareið 2022 – Sörli býður heim

 

Loksins verður kvennareið Sörla og Spretts föstudaginn 29.apríl. Sörlakonur eru gestgjafar í ár.

Við leggjum af stað frá Sörlastöðum kl.17.00 og ríðum til móts við Sprettskonur. Við hittum þær í Gjárétt, ríðum svo aftur að Sörlastöðum þar sem tekið verður á móti okkur með dýrindis mat og skemmtun!

Athugið að það þarf að skrá sig í matinn á netfang kvennadeild@sorli.is fyrir 27. april. Verð í matinn er 3500 kr. greitt inn á bankareikning 0544-26 -030963 kt.640269-6509.

Fljótandi veitingar verða til sölu á Sörlastöðum. Hægt verður að geyma hross í hvíta gerðinu við reiðhöllina.

Gaman saman, fjölmennum í eina skemmtilegustu reið ársins
Bestu kveðjur
Kvennadeild Sörla