Skip to content

Viðrunarhólf sumarið 2022

Gleðilegt sumar 

Nú þegar sól hækkar á lofti er gott að koma hrossunum okkar í útiveru yfir daginn, við erum svo lánsöm að hafa góð græn svæði til umráða hjá okkur hér í Spretti.

Eitt þeirra er Básaskarð, annað er við gamla Andvaravöllinn, og þriðja svæðið er vestan við Samskipahöll. Hólf á þessum svæðum eru ætluð til útiveru hrossa okkar yfir daginn.

Ekki er leyfilegt að hafa hross í hólfunum yfir nótt

Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leigja sér viðrunarhólf á þessum svæðum er bent hafa samband við Lilju framkvæmdarstjóra á tölvupósti sprettur@sprettarar.is fyrir 28. apríl
Verð fyrir hvert hólf er 10.000kr

Eingöngu skuldlausir félagsmenn fá hólf.

Nauðsynlegt er að fram komi Fullt nafn, kennitala, farsímanúmer og húsnúmer hesthús, einnig er gott að vita hversu lengi viðkomandi ætlar sér að nýta hólfið og hvar/ef viðkomandi hefur verið með hólf áður.

Hvert hesthús/eining getir sótt um eitt hólf.

ATH! Óheimilt er að setja upp beitarhólf á svæði Spretts nema í samráði við framkvæmdastjóra.

Sumarkveðja
Framkvæmdastjóri