Skip to content

Firmamót Spretts 2022

Takið fimmtudaginn 21.apríl frá.

 Firmakeppni Spretts er ein af mikilvægustu tekjuleiðum félagsins og þó fyrirvarinn sé stuttur þá ætlum við í mótanefnd Spretts ásamt Bödda og félögum að blása til sóknar fyrir félagið okkar og safna saman styrkjum og halda skemmtilegt mót.

 Þeir/þær sem vilja styrkja mótið er bent á að hafa samband við Bödda í síma 897-7517 eða Sverri 896 8242

Skráningargjöld á firmakeppni eru engin en keppendum er frjálst að borga smá skráningargjald til styrktar félaginu.

Keppt er um veglega farandbikara, auk verðlaunapeninga fyrir fimm efstu sætin.

Biðlum til þeirra sem unnu farandbikara í fyrra að skila þeim.

Boðið verður upp á keppni í eftirfarandi flokkum – í þessari röð:
Kl. 14

Pollar – teymdir og þeir sem ríða sjálfir
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn (10-13 ára)
Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
Konur II – minna keppnisvanar
Karlar II – minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I – meira keppnisvanar
Karlar I – meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur) 

Keppt verður á hringvelli, sýnt hægt tölt og svo yfirferð að eigin vali, tölt, brokk eða skeið.

Firmanefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg skráning í einhvern flokkanna. Hver knapi má einungis skrá sig í einn keppnisflokk. 

Keppendur eru hvattir til að sýna snyrtimennsku og mæta til leiks í sínu fínasta pússi á þessum hátíðardegi, enda verður glæsilegasta par mótsins valið að venju.

Sprettarar eru hvattir til að taka þátt í þessum skemmtilega degi – sjáumst í sumarskapi á fimmtudag!
Firmanefnd