Skip to content

Fréttir

Miðbæjarreið LH 28.maí

Landssamband hestamannafélaga stendur fyrir árlegri miðbæjarreið. Að þessu sinni fer reiðin fram þriðjudaginn 28. maí. Við hvetjum áhugafólk um íslenska hestinn til að koma í miðbæinn og dást að fallegu hestunum okkar. Reiðin hefst formlega við Hallgrímskirkju, þar sem Brokkkórinn tekur nokkur lög áður en haldið er niður Skólavörðustíg, áleiðs að Austurvelli og í gengum Hljómskálagarðinn. Tengill á viðburðinn á facebook https://fb.me/e/5wgzdiXj7 Við hvetjum Sprettara… Read More »Miðbæjarreið LH 28.maí

Gæðinga æfingamót fyrir yngri flokka spretts

Miðvikudaginn 15.maí nk. verður haldið æfingamót í gæðingakeppni fyrir alla keppendur í yngri flokkum eingöngu fyrir Sprettsfélaga. Boðið er upp á barnaflokk, unglingaflokk og ungmennaflokk. Tveir landsdómarar í gæðingakeppni munu dæma, gefa tölur og skrifa umsögn, ásamt punktum um hvað er gott og hvað mætti bæta. Einkunnir og umsögn verður send á tölvupósti til hvers þátttakanda að lokinni sýningu. Skráning er hafin á sportabler.com og… Read More »Gæðinga æfingamót fyrir yngri flokka spretts

Mátun mátun! Jakkar Jakkar!

Föstudaginn 10.maí verður haldin mátun á jökkum fyrir unga Sprettara! Í boði eru TopReiter jakkar, í karla og kvennastærðum, Ariat jakkar í barnastærðum og renndar hettupeysur í barnastærðum. Það ætti því að vera eitthvað í boði fyrir alla! Allir jakkar/peysur verða merktar eins. Æskulýðsnefnd stefnir að því að niðurgreiða jakkana og peysurnar töluvert. Mátunin fer fram föstudaginn 10.maí milli kl.17-19 á 2.hæði í Samskipahöllinni.

Keppnisvöllur upptekin

Á morgun, fimmtudaginn 9.maí, verður haldið námskeið úti á keppnisvelli frá kl.9:00 til 16:30. Biðjum við ykkur um að taka tillit til þeirra og veita þeim forgang á völlinn. Kynbótabraut og keppnisvöllur sunnan megin, ásamt völlum Andvaramegin, verða opnir. Með fyrirfram þökkum.

Kvikmyndatökur í Magnúsarlundi

Kæru Sprettarar Fimmtudag 9. maí frá ca. 20.00 – 24.00 verður kvikmyndatökuverkefni í Magnúsarlundi. Verið er að kvikmynda mynd um Vigdísi Finnbogadóttur. Tökur fara fram við eldstæðið inn í Magnúsarlundi Það fylgir því smá vesen að taka upp svona seríu –  trukkar og mannskapur.  Framkvæmdaraðilar munu leggja bílum og trukkum fyrir ofan lundinn (þar sem græna línan eru á myndinni ).  Reiðleiðum inn Magnúsarlund verður… Read More »Kvikmyndatökur í Magnúsarlundi

Gæðingamót Spretts 2024

Gæðingamót Spretts verður haldið dagana 24-27. maí 2024 á félagssvæði Spretts. Mótið ereinnig úrtaka fyrir Landsmót 2024. Boðið verður upp á seinni umferð úrtöku sem haldin verður mánudagskvöldið 27. maí.Skráning í seinni umferð er valkvæð. Skilyrði fyrir skráningu í seinni umferð er að parið hafiverið skráð til keppni í fyrri umferð. Gæðingakeppnin eru eingöngu fyrir Sprettsfélaga í yngri flokkum og eigandur hesta í A- ogB-flokki… Read More »Gæðingamót Spretts 2024

Helgarnámskeið hjá Antoni

Anton Páll Níelsson reiðkennari verður með helgarnámskeið 11.-12.maí í Samskipahöllinni. Í boði eru tímar frá kl.9-17. Kennt verður í 45mín einkatímum hvorn dag fyrir sig. Verð er 35.000kr.Skráning er opin og fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur.https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjkwMzE=Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 29.000kr.Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda póst… Read More »Helgarnámskeið hjá Antoni

Æfingar á keppnisvelli

Góðan daginn kæru Sprettarar! Í dag, mánudaginn 6.maí verða ungir Sprettarar við æfingar á keppnsivellinum. Vinsamlegast takið tillit til þeirra og veitið þeim forgang á keppnisvöllinn. Með fyrirfram þökkum 🙂

Sérkjör fyrir sprettara hjá Olís

Kæri meðlimur í hestafélaginu Sprettur  og ÓB Það er okkur mikil ánægja að tilkynna þér að hér að neðan sérskjör þín hjá Olís Sérkjör meðlima Spretts:  • 14 króna afsláttur af eldsneytislítranum á öllum stöðvum Olís og ÓB, nema þeim sjö sem alltaf bjóða fastlágt verð án annarra afsláttarkjara, sem eru ÓB stöðvarnar við Arnarsmára, Bæjarlind, Fjarðarkaup, Hamraborg, Skúlagötu, Hlíðarbraut Akureyri og á Selfossi.  •… Read More »Sérkjör fyrir sprettara hjá Olís