Skip to content

Sprettur Hestamannafélag

Sprettskórinn

Sprettskórinn er 30 manna karlakór, sem starfar innan Hestamannafélagsins Spretts. Upphaflega starfaði kórinn undir merkjum Hestamannafélagsins Gusts, en við sameiningu Andvara og Gusts í Hestamannafélagið Sprett, var nafninu breytt Kórinn æfir í félagsheimili Spretts í Samskipahöllinni á mánudögum kl. 20.00 – 22.00. Framundan eru 30 ára afmælistónleikar kórsins og verða þeir í Samskipahöllinni (Arnarfelli)  laugardagskvöldið 5.nóvember kl. 20.30. Gestakórar verða Karlakórinn Þrestir og Karlakór Hreppamanna.… Read More »Sprettskórinn

Íþróttafólk Spretts 2022

Stjórn Spretts og framkvæmdarstjóri óskar eftir upplýsingum um árangurSprettara á íþróttamótum og gæðingamótum á árinu 2022. Óskum eftir upplýsingum um árangur í öllum flokkum fyrir keppnisárið 2022,barna, unglinga, ungmenna og fullorðinsflokkum, áhugamenn sérstaklegaverðlaunaðir. Árangursupplýsingar eiga að sendast til sprettur@sprettarar.is ámeðfylgjandi formi Íþrottafólk-Spretts-2022 fyrir sunnudaginn 6. Nóvember. Stjórn Spretts hefur farið yfir reglur og stigagjöf fyrir íþróttafólkSpretts. Þetta eru reglur sem taka gildi fyrir árið 2022. Eftirfarandi verðlaun verða veitt:… Read More »Íþróttafólk Spretts 2022

Ný vél frá Vallarbraut

Nú á dögunum fékk Sprettur afhenta nýja vél og ávinnsluherfi til þess að sinna viðhaldi á gólfunum í reiðhöllunum og völlunum okkar. Nýja vélin sem við festum kaup á kemur frá Vallarbraut.is og heitir Solis, lítill og nettur traktor sem mun nýtast okkur vel í daglega umhirðu á reiðhöllunum og völlunum þegar þess þarf. Einnig festum við kaup á ávinnsluherfi fyrir reiðhallir og keppnisvelli. Sprettur… Read More »Ný vél frá Vallarbraut

Einkatímar hjá Árnýju Oddbjörgu

Reiðkennarinn Árný Oddbjörg býður uppá 30 mín einkatíma í Samskipahöll á miðvikudögum. Kennsla hefst 19.október 2022 og stendur til 7.desember 2022. Kennt er 1x í viku, samtals 8 skipti. Kennt er á miðvikudögum milli kl.15:00-20:00 í hólfi 3 í Samskipahöll. Árný er menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og hefur notið mikilla vinsælda sem reiðkennari. Hún hefur mikla reynslu af þjálfun, kennslu og keppni. Kennsla hennar og… Read More »Einkatímar hjá Árnýju Oddbjörgu

Áhugamannadeild Spretts 2023

Undirbúningur er á fullu fyrir níunda keppnisárið í Áhugamannadeild Spretts. Við stefnum á glæsileg mót árið 2023 og hafa dagsetningar löngu verið teknar frá í Samskipahöllinni góðu. Ný lið sem hafa áhuga á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 17.október nk. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn fimm knapa liðsins. Þau lið sem féllu úr deildinni 2022 geta sótt um aftur… Read More »Áhugamannadeild Spretts 2023

Lokun á reiðstíg vegna vatnsveituframkvæmda

Reiðstígur sem liggur ofan við Vatnsendabletti 710-713 og á milli Forna- og Breiðahvarfs verður lokaður í dag, mánudaginn 3. október vegna lagningu vatnslagnar þvert á stíginn. Gert er ráð fyrir að búið verði að opna stíginn aftur þriðjudaginn 4. október. Kveðja Birkir Rútsson Deildarstjóri Gatnadeildar

Knapamerkjakennsla hefst í október

Knapamerki eru frábær leið fyrir þá sem vilja sækja stigskipt nám í hestamennsku og bæta viðþekkingu sína og færni sem reiðmenn. Námið hentar öllum sem eru 12 ára og eldri, bæðibyrjendum sem og lengra komnum reiðmönnum. Minnum á að hægt er að nýta frístundastyrkinnfyrir yngri nemendur (kemur sjálfkrafa sem val í Sportabler). Einnig er hægt að fá kvittun fyrirnámskeiðunum sem fullorðnir geta nýtt sér hjá… Read More »Knapamerkjakennsla hefst í október