Skip to content

Einkatímar hjá Árnýju Oddbjörgu

Reiðkennarinn Árný Oddbjörg býður uppá 30 mín einkatíma í Samskipahöll á miðvikudögum. Kennsla hefst 19.október 2022 og stendur til 7.desember 2022.

Kennt er 1x í viku, samtals 8 skipti. Kennt er á miðvikudögum milli kl.15:00-20:00 í hólfi 3 í Samskipahöll.

Árný er menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og hefur notið mikilla vinsælda sem reiðkennari. Hún hefur mikla reynslu af þjálfun, kennslu og keppni.

Kennsla hennar og þekking hentar breiðum hópi knapa, ungum sem eldri eru, hvort sem um er að ræða ungur og lítið mótaður hestur eða meira gerður. Árný aðstoðar nemendur sína hvort sem er til undirbúnings fyrir keppni eða til þess að bæta sig og hestinn sinn til útreiða.

Frábær leið fyrir byrjendur sem lengra komna að fá aðstoð og leiðbeiningar með þjálfun á sínum hesti. Verð fyrir börn/unglinga/ungmenni er 36.500kr

Hlekkur á skráningu fyrir börn/unglinga/ungmenni; https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTMxODg=?

Verð fyrir fullorðna er 50.500kr. Hlekkur á skráningu fyrir fullorðna; https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTMxODk=?