Skip to content

Uncategorized

Kvennareið 2022 – Sörli býður heim

  Loksins verður kvennareið Sörla og Spretts föstudaginn 29.apríl. Sörlakonur eru gestgjafar í ár. Við leggjum af stað frá Sörlastöðum kl.17.00 og ríðum til móts við Sprettskonur. Við hittum þær í Gjárétt, ríðum svo aftur að Sörlastöðum þar sem tekið verður á móti okkur með dýrindis mat og skemmtun! Athugið að það þarf að skrá sig í matinn á netfang kvennadeild@sorli.is fyrir 27. april. Verð… Read More »Kvennareið 2022 – Sörli býður heim

Rýming malarplans vestan við Markaveg

Sprettarar vinsamlega athugið!! Vegna sveitarstjórnarkosninga 14. maí næstkomandi og tónleika Andrea Bocelli í Kórnum þann 21. maí er þörf á að nýta bílastæðin vestan við Markaveg fyrir kjósendur og gesti í Kórnum þessa daga. Undirbúa þarf svæðið áður en til þessa atburða kemur og því er óskað eftir því að hestamannafélagið Sprettur komi því áfram á sína félagsmenn að fjarlægja kerrur og annað sem þeim… Read More »Rýming malarplans vestan við Markaveg

Litli rekstarhringurinn, áminning um notkun

Af gefnu tilefni þurfum við að setja skýrar reglur um hvenær megi reka hross á gamla gæðingavellinum í Spretti. Undanfarið hafa okkur borist of margar kvartanir vegna óþæginda sem reiðmenn verða út af hlaupandi hrossum á hringnum. Leyfilegt er að reka alla daga frá kl 6:00-12:00 og frá kl 20:00-23:00. Stranglega bannað er að nota bílflautur eða annan hávaða þegar hrossin eru rekin. Gæta skal… Read More »Litli rekstarhringurinn, áminning um notkun

Hreinsunardagur Spretts 28.apríl

Næstkomandi fimmtudag 28.apríl verður hreinsunardagur Spretts. Hittumst við Samskipahöllina kl 17:00, náum okkur í poka og röltum af stað. Við hvetjum félagsmenn til að þess að bíða með útreiðar og taka höndum saman og ganga um svæðið okkar og týna rusl, raka reiðvegina og laga til það sem betur má fara, ruslapokar og áhöld verða til staðar. Á sama tíma ætlum við líka að laga… Read More »Hreinsunardagur Spretts 28.apríl

Viðrunarhólf sumarið 2022

Gleðilegt sumar  Nú þegar sól hækkar á lofti er gott að koma hrossunum okkar í útiveru yfir daginn, við erum svo lánsöm að hafa góð græn svæði til umráða hjá okkur hér í Spretti. Eitt þeirra er Básaskarð, annað er við gamla Andvaravöllinn, og þriðja svæðið er vestan við Samskipahöll. Hólf á þessum svæðum eru ætluð til útiveru hrossa okkar yfir daginn. Ekki er leyfilegt… Read More »Viðrunarhólf sumarið 2022

Firmamót Spretts 2022

Takið fimmtudaginn 21.apríl frá.  Firmakeppni Spretts er ein af mikilvægustu tekjuleiðum félagsins og þó fyrirvarinn sé stuttur þá ætlum við í mótanefnd Spretts ásamt Bödda og félögum að blása til sóknar fyrir félagið okkar og safna saman styrkjum og halda skemmtilegt mót.  Þeir/þær sem vilja styrkja mótið er bent á að hafa samband við Bödda í síma 897-7517 eða Sverri 896 8242 Skráningargjöld á firmakeppni… Read More »Firmamót Spretts 2022

Opið Íþróttamót Spretts verður samkvæmt dagskrá 4.-8.maí

Skráning á mótið er opin og mun standa til miðnættis laugardaginn 29. apríl.Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Sprettur áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka. Það er mikil vinna sem liggur að baki undirbúningi og framkvæmd íþróttamótsins. Flest vinum við þetta í sjálfboðavinnu og með glöðu geði. Hins vegar viljum í nefndinni fara fram á að… Read More »Opið Íþróttamót Spretts verður samkvæmt dagskrá 4.-8.maí

Karlatölt Spretts 2022

Opnir æfingatímar fyrir Karlatöltið verða á sunndag 17.apríl kl 14:00-17:00 og Mánudaginn 18.apríl kl 21:00-23:00  

Dagskrá Dymbilvikusýningar Spretts 2022

Þá er dagurinn runnin upp, sólin farin að skína og allir komnir í páskafíling. Það fer allt að verða tilbúið fyrir dymbilvikusýninguna í kvöld sem hefst kl 20:00 í Samskipahöllinni. Vegleg dagskrá í boði og opnar húsið kl 18.00,Hægt verður að kaupa mat og einnig verður Happy hour á milli 18:00-20:00 Aðgangseyrir 2000 kr. Fyrir 12 ára og eldri. Ræktunarhross skipa stærstan sess á sýningunni… Read More »Dagskrá Dymbilvikusýningar Spretts 2022

Námskeið fyrir þuli á mótum

LH stendur fyrir námskeiði fyrir þuli sem stýra keppni á mótum. Námskeiðið verður haldið í TM-reiðhöllinni í Víðidal sunnudaginn 24. apríl kl. 11-16. Kennari á námskeiðinu er Sigrún Sigurðardóttir en hún er ein af okkar reyndustu þulum. Boðið verður upp á tveggja tíma fyrirlestur í veislusal reiðhallarinnar og svo er verkleg kennsla í reiðhöllinni þar sem nemendur fá að stýra knöpum í reið. Við hvetjum… Read More »Námskeið fyrir þuli á mótum