Skip to content

Dagskrá Dymbilvikusýningar Spretts 2022

Þá er dagurinn runnin upp, sólin farin að skína og allir komnir í páskafíling.

Það fer allt að verða tilbúið fyrir dymbilvikusýninguna í kvöld sem hefst kl 20:00 í Samskipahöllinni.

Vegleg dagskrá í boði og opnar húsið kl 18.00,
Hægt verður að kaupa mat og einnig verður Happy hour á milli 18:00-20:00

Aðgangseyrir 2000 kr. Fyrir 12 ára og eldri.

Ræktunarhross skipa stærstan sess á sýningunni líkt og verið hefur, en boðið verður upp á sýningar ræktunarbúa, úrvals hryssur og stóðhesta, ræktunarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu, íþróttafólk Spretts verður heiðrað, ungir Sprettarar koma fram.
Erfitt er að festa tíma fyrir svona sýningar en hér er dagskrá kvöldsins ásamt tímasetningu í von um að allt ganga smurt fyrir sig.

Dymbilvikusýning Spretts | Facebook

Dagskrá Dymbilvikusýningar 2022

Formaður 
Súperhetjur Spretts
Indjánar
Kynbóta hross frá Hestamannafélaginu Herði
Kynbóta hross frá Hestamannafélaginu Spretti
Kynbóta hross frá Hestamannafélaginu Sörla
Verðlaunaafhending ræktunarhópa hestam
Sigurvegarar Áhugamannadeildar 2022
Systur og bræður
Hlé
Íþróttafólk Spretts 2022
Vallarás
Laugamýri
Jökulsfélagar
Klárhross í Spretti
Ræktun Gauks og Grétu
Eystri Hóll
Frískir folar
Skvísurnar í Spretti