Skip to content

Pollanámskeið

Frábæru pollanámskeiðin hjá Hrafnhildi Blöndahl halda áfram laugardaginn 16.mars. Kennt verður í Húsasmiðjuhöllinni, 40mín hver tími, samtals 6 skipti. Tímasetningar í boði á milli kl.10-12. Ekki er kennt laugardaginn 30.mars. Síðasti tíminn er laugardaginn 27.apríl. Stefnt verður að því að fara amk 1x út, í afmarkað svæði, ef veður leyfir.

Skipt verður í þrjá mismunandi hópa;
Kl.10:00- 10:40 minna vanir
Kl.10:40-11:20 meira vanir
Kl.11:20-12:00 pollar/börn ríða sjálf/ekki teymd

Verð er 8.000kr.

Skráning fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur og opnar kl.12:00 laugardaginn 2.mars. (ATH! það þarf að „refresha“ sportabler síðuna ef námskeiðin birtast ekki kl.12:00)