Skip to content

Helgarnámskeið Anton Páll 23.-24.mars

Helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni 23.-24.mars nk.

Um er að ræða tvo einkatíma sem kenndir eru laugardaginn 23.mars og sunnudaginn 24.mars.

Kennt verður í Samskipahöll hólf 3 á laugardegi og Húsasmiðjuhöll á sunnudegi.

Kennsla fer fram milli kl.9:00-16:30. Verð er 35.000kr fyrir fullorðna.

Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 29.500kr. Sjá ákveðnar tímasetningar merktar yngri flokkum. Ef óskir eru um aðrar tímasetningar þá er hægt að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is.

Skráning hefst laugardaginn 2.mars kl.12:00 og fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur (ATH! það getur þurft að „refresha“ síðuna ef námskeiðin birtast ekki kl.12:00)