Skip to content

Hindrunarstökksnámskeið fyrir fullorðna!

Hindrunarstökksnámskeið verður haldið í Spretti og hefst fimmtudaginn 1.febrúar. Kennt verður á fimmtudögum, samtals 6 skipti, í Húsasmiðjuhöll. Námskeiðið er fyrir fullorðna knapa sem hafa áhuga á hindrunarstökks- og brokkspíruþjálfun. Knapar þurfa að hafa grunnstjórn á hestum sínum. Markmið námskeiðsins er að auka þor manns og hests með hindrunum, sem og auka þekkingu knapa á góðri hindranaþjálfun. Búnaður sem þarf á hestinn: hnakkur, beisli, hringtaumsmúll/tamningabeisli, langur taumur og hringtaumspískur. Kennt verður í hópum á fimmtudögum kl.17:00-18:00 Verð er 20.500kr. Kennari er Guðrún Margrét Valsteinsdóttir.
Kennt verður í Húsasmiðjuhöll. Skráning er opin á sportabler.com
https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjY5MjI=