Skip to content

Fyrirlestraröð yngri flokka

Fyrirlestraröðin er sameiginleg fyrir knapa í yngri flokkum Spretts, Fáks og Sóta.

Haldnir verða fjórir fróðlegir fyrirlestrar sem ætlaðir eru sérstaklega fyrir knapa í yngri flokkum – barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki.

1) Þriðjudaginn 30.janúar kl.19:00 í veislusalnum í Samskipahöllinni, Spretti
Halldór Victorsson íþróttadómari – Hvað eru íþróttadómarar að hugsa? Halldór fer yfir lög og reglur, dómsskala og allt sem viðkemur keppni í íþróttakeppni.

2) Miðvikudaginn 14.febrúar kl.19:00 í veislusalnum í Samskipahöllinni, Spretti
Einar Ásgeirsson fóðurfræðingur – fyrirlestur um fóðrun og bætiefni. Lögð verða drög að fóðuráætlunum.

3) Þriðjudaginn 5.mars kl.19:00 í veislusalnum í Lýsishöllinni, Fáki
Hinrik Þór Sigurðsson reiðkennari – hugarþjálfun og undirbúningur fyrir keppni.

4) Apríl/maí – dagsetning kemur síðar, en fyrirlesturinn verður haldinn í veislusalnum í Lýsishöllinni, Fáki.
Þórir Örn Grétarsson, gæðingadómari, fer yfir keppni, dómsskala, lög og reglur í gæðingakeppni.

Verð er 5.000kr fyrir alla fjóra fyrirlestrana. Hægt er að nýta frístundastyrk til greiðslu.
Skráning er hafin á sportabler.com

https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjY5MjQ=