Skip to content

Hindrunarstökksnámskeið

Hindrunarstökksnámskeið verður haldið í Spretti og hefst sunnudaginn 26.mars. Kennt verður á sunnudögum, samtals 4 skipti. Námskeiðið er fyrir knapa í yngri flokkum, 10 ára til 21 árs, sem hafa áhuga á hindrunarstökks- og brokkspíruþjálfun. Knapar þurfa að hafa grunnstjórn á hestum sínum. Markmið námskeiðsins er að auka þor manns og hests með hindrunum, sem og auka þekkingu knapa á góðri hindranaþjálfun. Búnaður sem þarf á hestinn: hnakkur, beisli, hringtaumsmúll/tamningabeisli, langur taumur og hringtaumspískur. Kennt verður í hópum á sunnudögum kl.16:30-17:30. Verð er 10.000kr. Kennari er Guðrún Margrét Valsteinsdóttir.
Kennt verður eftirtalda sunnudaga: 26.mars húsasmiðjuhöll,
2.apríl húsasmiðjuhöll
16.apríl samskipahöll
23.apríl samskipahöll

Skráning er opin í sportabler
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTc4MTA=?