Skip to content

Hestaíþróttir yngri flokkar

Boðið verður upp á námskeið fyrir börn og unglinga og er ætlað þeim sem vilja sækja almennt reiðnámskeið þar sem farið verður yfir undirstöðuatriði í reiðmennsku. Námskeiðið hentar einnig fyrir þau sem hafa sótt pollanámskeið og vilja stíga næsta skref í sinni reiðmennsku. Miðað er við að nemendur geti stjórnað sínum hesti sjálf og riðið á tölt/brokk hraða. Viðmiðunaraldur er 8 til 14 ára. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu.

Á námskeiðinu verður farið yfir ásetu, stjórnun, gangtegundir, allskonar æfingar og leiki. Markmiðið er að bæta sig og hestinn sinn og hafa gaman.

Kennsla hefst 20.janúar og verður ýmist kennt á laugardögum eða sunnudögum á tímabilinu kl.13-15. Kennt verður í Húsasmiðjuhöll. 4-5 saman í hóp. 6 skipti. Kennari er Þórdís Anna Gylfadóttir. Verð er 15.500kr. Skráning er opin og fer fram á sportabler.

Beinn hlekkur hér;

https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjY0OTc=

Kennt verður eftirtalda daga;

20.janúar laugardagur

27.janúar laugardagur

3.febrúar laugardagur

11.febrúar sunnudagur

17.febrúar laugardagur

Ekki kennt helgina 24 og 25feb

2.mars laugardagur