Skip to content

Fréttir

Sértilboð á fatnaði fyrir hestamannafélagið Sprett

Í samstarfi við hestavöru- og reiðfataframleiðandann Hrímni, bjóðum við upp á að panta sérframleiddan fatnað merktan Spretti. Laugardaginn 27 janúar kl. 14-17 á annari hæð í reiðhöllinni og sunnudaginn 28 janúar kl. 10-13 í veislusal Spretts, bjóðum við upp á mátunardag en þá koma fulltrúar Hrímnis með allar stærðir af fatnaðnum svo hægt sé að velja rétta stærð. Við bjóðum félagsmönnum að greiða aðeins helming… Read More »Sértilboð á fatnaði fyrir hestamannafélagið Sprett

Hestaferðir fyrir Sprettara

Hestar og Fjöll ehf bjóða Spretturum uppá hestaferðir þar sem allt er innifalið nema hestar, hver og einn kemur með sína hesta.Allar nánari upplýsingar er að fá hjá Martinu Holmgren. Martina HolmgrenTölvupóstur/e-mail: martina@hestarogfjoll.comSími/tel: +354 789 7510 Hestar og Fjöll Ehf Mið-Grund, 861 Hvolsvöllur, Iceland.Sími /tel: +354 789 75 10www.hestarogfjoll.com

Þorrablót Spretts 3.feb

Þorrablót Spretts verður haldið í veislusal Spretts þann 3. feb nk. Hreimur Örn Heimisson verður veislustjóri kvöldsins. Sprettskórinn tekur nokkur lög, uppboð verður á folatollum á vegum hrossaræktarnefndar Spretts. DJ Atli Kanill mun svo halda uppi stuðinu á dansgólfinu fram á nótt. Miðaverð er 11.900kr eingöngu verður hægt að panta miða í forsölu. Borðapantanir/miðapantanir fara fram í gegnum netfangið Sprettur@sprettarar.is, panta verður miða/borð fyrir 31.jan… Read More »Þorrablót Spretts 3.feb

Æfingatímar ungmenni

Ungmenni Spretts! Æfingatímar með alþjóðlegum dómara verða í boði, ókeypis, þriðjudaginn 23.janúar milli kl.20-22 í Samskipahöllinni. Æfingatímarnir eru eingöngu ætlaðir ungmennum að þessu sinni. Hægt er að skrá 1-2 hesta, ef fjöldi skráninga verður mikill þá styttum við tímann í 7mín. Hægt er að mæta með ungan og efnilegan hest eða eldri og reyndari, alveg sama hvaða prógramm þið viljið sýna, einn inn á í… Read More »Æfingatímar ungmenni

Tökum tillit til hvors annars í reiðhöllum Spretts.

Af gefnu tilefni bið ég félagsmenn sem nýta reiðhallir Spretts til að sýna öðrum ávalt tillit. Undanfarið hafa kvartanir borist undan félagsmönnum sem ríða geyst í reiðhöllunum, jafnvel hafa viðkomandi aðilar riðið á aðra hesta og knapa og því miður hefur gassareið félagsmanna orðið til þess að aðrir hafa dottið af baki inni í höllum félagsins. Bið þá félagsmenn sem ætla að ríða yfirferðagang að… Read More »Tökum tillit til hvors annars í reiðhöllum Spretts.

Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts 2024

Nú styttist í að keppnistímabil Samskipadeildarinnar, áhugamannadeild Spretts 2024 hefjist. Við hefjum keppni fimmtudagskvöldið 22. febrúar þegar keppt verður í fjórgangi, styrktaraðili kvöldsins er Josera. Við ætlum að hafa sama snið á deildinni og í fyrra, öll lið hafa möguleika á að tefla fram öllum 5 knöpum liðsins í öllum greinum, en áfram verður það þannig að árangur efstu þriggja knapa hvers liðs telja til… Read More »Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts 2024

Þorrablót Spretts 3.feb

Þorrablót Spretts verður haldið í veislusalnum þann 3. feb nk. Hreimur Örn Heimisson verður veislustjóri, Sprettskórinn tekur nokkur lög og svo stígum við til dans fram á nótt . Miðaverð er 11.900kr eingöngu verður hægt að panta miða í forsölu. Borðapantanir/miðapantanir fara fram í gegnum netfangið Sprettur@sprettarar.is Skemmtinefnd Spretts

Grímu og glasafimi Spretts 2024

Skemmtilegasta mót ársins mun fara fram 27 jan nk – Grímu og glasafimi. Fjörið hefst kl 17:30 Við hvetjum unga sem og eldri Sprettara til þess að spreyta sig á sínum gæðing. Það verða riðnir 2 hringir með glas í hendi og sá sem sullar minnst úr sínu glasi vinnur sinn flokk. Það er valfrjálst að mæta í búning en sérstök verðlaun verða hins vegar… Read More »Grímu og glasafimi Spretts 2024

Vinna í Húsasmiðjuhöllinni

Frá og með morgundeginum ( 17.jan) og næstu daga verður pípari ( stundum rafvirki líka) að störfum í Húsasmiðjuhöllinni á daginn fá kl 8-16. Unnið verður að því að setja upp hitablásara og lagnir í höllinni, styttist í að hiti komist á höllina. Bið Sprettara sem nýta höllina til þjálfunar um að sýna píparanum tillit og þolinmæði við störf sín. Þar sem ískalt er í… Read More »Vinna í Húsasmiðjuhöllinni

BLUE LAGOON mótaröðin

Vinsæla BLUE LAGOON mótaröðin verður á sínum stað í vetur í Samskipahöllinni í Spretti. Mótaröðin er ætluð börnum, unglingum og ungmennum alls staðar af landinu. Einnig verður boðið upp á einstaka keppni í pollaflokki þann 29.febrúar. Keppt verður á fimmtudögum. Húsið opnar kl.17:15 og mótin hefjast kl.17:30. Skráningagjöld verða 3500kr.15.febrúar Fjórgangur29.febrúar Fimmgangur og pollakeppni21.mars Tölt og slaktaumatölt11.apríl Gæðingakeppni innanhúss Sex efstu knapar fara í úrslit… Read More »BLUE LAGOON mótaröðin