Fréttir og tilkynningar

Íslandsmótið í gæðingalist 29.apríl-1.maí

Fyrsta Íslandsmótið í gæðingalist verður haldið í Samskipahöllinni í Spretti dagana 29.apríl – 1.maí 2025. Á Landsþingi sl. haust var samþykkt að halda sérstakt Íslandsmót í gæðingalist í lok innanhússtímabils, eða fyrir 15.maí ár hvert. Þetta mót kemur því í stað þess að keppt er í gæðingalist á Íslandsmótum utanhúss.

Nánar

Móttaka á plasti

Fimmtudaginn 17. apríl, Skírdag , milli klukkan 11:00-12:00 verður tekið á móti plasti í nýjum gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll. Eingöngu verður tekið á móti heyrúlluplasti – ekki plasti utan af spæni, heynetum eða öðru rusli. Rúlluplastið má ekki vera í plastpokum. Biðjum við félagsmenn að

Nánar

Námskeiðsdagur fyrir ungmenni!

Sylvía Sigurbjörnsdóttir reiðkennari og tamningamaður býður ungmennum Spretts til sín í námskeiðsdag á Kvistum laugardaginn 26.apríl. Einungis 8 pláss eru í boði núna – en stefnt er að því að taka annan námskeiðsdag fljótlega. Hver reiðtími er um 40mín. Sameiginlegur hádegismatur í boði. Ungmenni þurfa að koma sér sjálf austur

Nánar

Niðurstöður Blue Lagoon mótaraðarinnar

Síðasta mótið í Blue Lagoon mótaröðinni fór fram í gærkvöld og var keppt í tölti. Einnig var boðið upp á pollaflokk og voru 19 glæsilegir pollar sem mættu og sýndu okkur hesta sína. Framtíðin er björt í hestamennskunni með þessa flottu polla okkar. Eiðfaxi TV hefur veirð með okkur í

Nánar

Keppnisvöllurinn uppsettur í Samskipahöll

Kæru Sprettarar! Á morgun, föstudag, verður Samskipahöll opin frá kl.6-8 um morguninn og svo aftur milli kl.9-14. Á þessum tíma verður keppnisvöllurinn uppi með öllu tilheyrandi, dómaraborðum og stólum. Hægt verður að nýta sér sporaslóðina og keppnisvöllinn til þjálfunar en ekki miðju vallarins. Þökkum tillitssemina.

Nánar

Farandgripir Firmakeppni

Firmakeppni Spretts fer fram fimmtudaginn 24. apríl, á Sumardagurinn fyrsta. Óskað er eftir því að handhafar farandgripanna komi með þá upp á skrifstofu á 2. hæð Samskipahallarinnar fyrir 15. apríl svo hægt sé að merkja þá fyrir mótið. 

Nánar
Scroll to Top