Fréttir og tilkynningar

Einkatímar með Antoni Páli

Einkatímar með Antoni Páli 4. og 22.maí 2026 Einkatímar með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni mánudaginn 4. og föstudaginn 22.maí. Kennt verður í Samskipahöllinni. Kennsla fer fram milli kl.9-17. Verð fyrir tvo tíma er 36.000kr fyrir fullorðna, kennsla + reiðhallarleiga. Verð fyrir yngri flokka er 30.000kr. Skráning fer fram á abler.io

Nánar

Úrslit Firmakeppni Spretts 2026

Firmakeppni Spretts fór fram að venju á sumardaginn fyrsta í björtu veðri úti á beinu brautinni. Mikið var af glæsilegum hrossum og knöpum en allra glæsilegasta parið, Kári Sveinbjörnsson og Gígjar frá Bakkakoti, fengu kassa af grænmeti frá Flúðasveppum En niðurstöður mótsins voru eftirfarandi: Pollar teymdir. Grétar Ingi Farestveit og

Nánar

Þrautabrauta- og leikjadagur ungra Sprettara

Fimmtudaginn 30. apríl nk. verður haldinn Þrautabrautar- og leikjadagur Spretts í Samskipahöllinni! Dagurinn er ætlaður ungum Spretturum. Aldursviðmið eru pollar, börn og unglingar – en allir eru velkomnir! Sett verður upp hestaþrautabraut í Samskipahöllinni þar sem hver og einn mætir með sinn hest. Það má mæta í búningi ef stemming

Nánar

Samskipadeildinin, Áhugamannadeild Spretts, 2026 lokið

Keppni í gæðingaskeiði í boði Útfararstofu Íslands fór fram í frábæru veðri og góðum velli í Sörla miðað við árstíma og miklar leysingar dagana áður laugardaginn síðastliðinn. Þar voru margir góðir sprettir farnir en að lokum var það Rósa Valdimarsdóttir og Lás frá Jarðbrú 1 sem stóðu uppi sem sigurvegarar

Nánar

Einkatímar hjá Þorvaldi Árna

Reiðkennarinn og Sprettarinn Þorvaldur Árni Þorvaldsson býður upp á einkatíma í Húsasmiðjuhöll. Kennt verður á mánudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 27.apríl og lýkur 18.maí, samtals 4 skipti. Einungis 4 pláss í boði, kennt frá kl.17:00 til 19:40. Tímarnir henta fjölbreyttum hópi hesta og knapa, en Þorvaldur mun mæta hverjum og einum

Nánar

Fræðsludagur Töltgrúppu Spretts og Töltskvísa Sleipnis

Sumardaginn fyrsta, 23. apríl, ætla töltslaufuhópar Spretts og Sleipnis, að halda skemmtilegan æfinga- og fræðsludag. Hóparnir vilja þess vegna bjóða öllum sem hafa áhuga á að sjá hvað hóparnir hafa verið að gera í vetur og fræðast aðeins meira að koma og eyða einu stuttu kvöldi með okkur. Hóparnir taka

Nánar
Scroll to Top