Kæru sprettarar!
Nú styttist í að margir fari að taka hrossin inn á hús og hverfið okkar fari að lifna enn meira við, þó svo að töluvert hafi verið um hross hér í haust. Það er að mörgu að hyggja í starfi félagsins okkar og mig langar að fara yfir nokkur atriði og upplýsa ykkur um það sem hefur verið í gangi undanfarið.
Við í stjórninni höfum fundað vikulega og mörg verkefni verið á dagskrá. Það hefur ýmislegt áunnist og þó alltaf megi gera betur finnst mér mikilvægt að deila með ykkur því helsta sem hefur verið gert:
1. Árshátíð Spretts var haldin.
2. Uppskeruhátíð æskunnar var haldin.
3. Fjölbreytt námskeið eru farin í gang í höllunum.
4. Steypt var stétt fyrir utan Samskipahöllina.
5. Nefnd vegna byggingar félagshesthúss er komin á fullt.
6. Hreinsað hefur verið meðfram höllinni og inngangur fyrir félagsmenn lagfærður.
7. Hurðir á Samskipahöllinni hafa verið lagfærðar og málaðar.
8. Mottur hafa verið settar á stéttina í rennunni.
9. Hringgerðin hafa verið lagfærð og gerði máluð.
10. Keyptur hefur verið þráðlaus hljóðnemi í reiðhöllina svo hægt sé að nýta hann t.d við sýnikennslu.
Og áfram mætti lengi telja!
Eitt af þeim verkefnum sem hefur verið að vefjast fyrir okkur er lýsingin á hringnum okkar. Það mál er í vinnslu hjá bæjarfélögunum og verður vonandi klárað á næstunni.. Það hefði vissulega mátt ganga hraðar, en við gefumst ekki upp!
Við fengum góða heimsókn frá Sprettskórnum þar sem við áttum virkilega skemmtilegt samtal og fengum að heyra um metnaðarfullar áætlanir þeirra fyrir næsta ár. Þar má meðal annars nefna ferð á heimsmeistaramótið í Reiden þar sem þau stefna að því að syngja og styðja við íslenska hestamennsku með sínum hætti. Það er virkilega gaman að sjá þennan metnað og kraft!
Stjórnin fór einnig á fund með Ásthildi Helgadóttur hjá Kópavogsbæ þar sem meðal annars var rætt um samskipti okkar við bæinn og mikilvægi þess að hafa skýra tengiliði. Að sjálfsögðu var hinn margumtalaði snjómokstur einnig á dagskrá, en hann kostaði félagið alltof mikla fjármuni síðasta vetur. Við vonumst til að vera í betri málum í vetur og að tenging og samskipti við framkvæmdaraðila verði markvissari. Talandi um samskipti við bæinn þá náðum við einnig að fá fram nokkrar nauðsynlegar úrbætur í félagshesthúsinu sem hafa verið kærkomnar.
Fram undan er spennandi vetur!
Næsti vetur og komandi keppnistímabil eru þegar farin að fyllast af spennandi viðburðum. Við höldum áfram með okkar góðu hefðir og viðburði, meðal annars:
• Áhugamannadeildina
• Blue Lagoon deildina
• Skötuveisluna
• Þorrablótið
• Íslandsmót barna og unglinga fyrstu helgina í júlí
Og auðvitað allt hitt skemmtilega sem ég er örugglega að gleyma að nefna!
Margar hendur vinna létt verk. Til þess að allt þetta geti gengið upp vil ég hvetja alla sem eiga lausan tíma til að leggja félaginu lið. Okkur vantar hendur í fjölbreytt verkefni, bæði stór og smá. Það þarf ekki mikið til að hjálpa og margar hendur vinna sannarlega létt verk. Rekstur félagsins er krefjandi og kostnaðurinn mikill við að halda við reiðgötum, gerðum og húsnæði. Þess vegna vil ég líka hvetja alla sem nýta sér aðstöðuna okkar til að skrá sig í félagið og styðja þannig við starfsemina. Okkur langar að gera svo margt fyrir félagið okkar og félagsmenn, en til þess þurfum við að standa saman. Það skiptir máli að allir leggi sitt af mörkum, hvort sem það er með félagsaðild, sjálfboðastarfi eða einfaldlega með jákvæðu viðhorfi og góðum stuðningi. Sprettur er okkar sameiginlega félag og það er okkar allra að gera það enn betra!
Kær kveðja, Halldór Victorsson
