Fréttir og tilkynningar

Pollafimi að hefjast
Pollafimi er námskeið fyrir yngstu knapana þar sem verður lögð áhersla á jafnvægi og ásetu með skemmtilegum æfingum meðan þeir eru hringteymdir. Sniðugt er fyrir 2 litla knapa að sameinast um einn hest. Það sem þarf er hestur (getur verið reiðhestur fjölskyldunnar, bara að hann sé þægur og hann hringteymist),

Pistill frá formanni
Kæru sprettarar! Nú styttist í að margir fari að taka hrossin inn á hús og hverfið okkar fari að lifna enn meira við, þó svo að töluvert hafi verið um hross hér í haust. Það er að mörgu að hyggja í starfi félagsins okkar og mig langar að fara yfir

Móttaka á plasti
Þriðjudaginn 24.nóvember, milli klukkan 18:00-19:00 verður tekið á móti plasti í gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll. Eingöngu verður tekið á móti heyrúlluplasti – ekki plasti utan af spæni, heynetum eða öðru rusli. Rúlluplastið má ekki vera í plastpokum. Biðjum við félagsmenn að virða þetta – ef

Sameiginlegt jólaball
Sameiginlegt jólaball Fáks, Sörla, Spretts og Sóta verður haldið í reiðhöllinni í Hafnarfirði 20. desember kl.16 Heitt kakó, jólasveinar og góð stemning.

Skötuveisla Spretts 2026
Minnum á! Skötuveisla hestamannafélagsins Spretts verður haldin á Þorláksmessu frá klukkan 11:30-14:00 í veislusal Spretts í Samskipahöllinni. Boðið verður upp á kræsingar í anda Þorláksmessu auk söngs, gleði og góðs félagsskapar. Nánari upplýsingar koma fljótlega.

Skráning á námskeið
Við minnum á að skráning á námskeið er í fullum gangi þessa dagana og skráningu lýkur núna í vikunni en næstu námskeið sem eru í boði eru: – Knapamerkin, verkleg kennsla, hefst mánudaginn 23.nóv. – Einkatímar hjá Antoni Páli, hefst þriðjudaginn 24.nóv. – Pollafimi með Hrafnhildi Blöndahl, hefst laugardaginn 28.nóv.
