Fréttir og tilkynningar

Elva, Guðný og Herdís hljóta afreksstyrki ÍTG

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar hefur veitt þremur ungum Spretturum afreksstyrki í seinni úthlutun afreksstyrkja ársins 2026. Það eru þær Elva Rún Jónsdóttir, Guðný Dís Jónsdóttir og Herdís Björg Jóhannsdóttir sem hljóta 100.000kr afreksstyrk hver fyrir góðan árangur árið 2026. Til hamingju með styrkinn stelpur og góðan árangur á árinu.

Nánar

Móttaka á plasti

Fimmtudaginn 8. október, milli klukkan 18:00-19:00 verður tekið á móti plasti í gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll. Eingöngu verður tekið á móti heyrúlluplasti – ekki plasti utan af spæni, heynetum eða öðru rusli. Rúlluplastið má ekki vera í plastpokum. Biðjum við félagsmenn að virða þetta –

Nánar

Söngæfing Sprettkórsins á mánudaginn

Fyrsta söngæfing Sprettskórsins á nýju söngári er mánudaginn 28. september kl. 20:00 í Samskipahöllinni. Um 40 söngmenn eru í kórnum og nýir að bætast við. Þeir sem vilja slást í hópinn geta haft samband við Atla Guðlaugsson kórstjóra í síma 864-9019 eða í tölvupósti í atlitindar(hja)gmail.com.

Nánar

Bókleg Knapamerki haust 2026

Bókleg knapamerki verða kennd í október og nóvember (ef næg þátttaka fæst) og lýkur námskeiðunum með skriflegum prófum. ​Námskeiðið er opið öllum þeim er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í knapamerkjunum. ​Knapamerkjabækurnar fást t.d. í Líflandi, Ástund og hjá Hólaskóla. Sum bókasöfn eiga einnig eintök (ATH! Nýjustu bækurnar

Nánar

Óskað eftir árangri kynbótahrossa

Hrossaræktarnefnd Spretts auglýsir eftir árangri kynbótahrossa árið 2026 ræktuð af félagsmönnum. Verðlaun eru veitt fyrir 3 efstu hross í hverjum flokki. Allir skuldlausir félagsmenn eru beðnir að skila inn árangri sinna hrossa fyrir 7. október á netfangið: audur.stefansdótt**@***il.com

Nánar

Reiðnámskeið með Árnýju Oddbjörgu

Reiðkennarinn Árný Oddbjörg býður upp á reiðnámskeið í haust, október til nóvember, námskeiðið hefst 21.október og lýkur 18.nóvember, samtals 5 skipti. Skráning opnar kl.12:00 mánudaginn 21.september. Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur. Námskeiðið verður kennt á miðvikudögum milli kl.15:00-20:00. Kennt verður í Samskipahöllinni. Kenndir eru 30mín einkatímar. Verð fyrir fullorðinn er

Nánar
Scroll to Top