Fréttir og tilkynningar

Einkatímar hjá Antoni Páli

Reiðkennarinn Anton Páll býður upp á þrjá einkatíma með 2ja vikna millibili í nóv og des 2026. Kennt er í Samskipahöll þriðjudagana 24.nóv., 8.des. og 22.des. Tímasetningar í boði milli kl.9 og 17. Verð er 52.500kr fyrir fullorðna og 45.000kr fyrir unga Sprettara. Skráning opnar kl.12:00 á abler mánudaginn 9.nóv.

Nánar

Uppskeruhátíð ungra Sprettara vel heppnuð

Uppskeruhátíð ungra Sprettara var haldin fimmtudagskvöldið 5. nóvember. Hátíðin fór fram í veislusal Samskipahallarinnar þar sem ungir Sprettarar höfðu sjálfir skreytt daginn áður. Dagskráin var fjölbreytt, með viðurkenningum fyrir árangur og ástundun, Kahoot-leik og veislumati að Jóns Ó. Guðmundssonar kokks. Þakkir og breytingar í nefndum Breytingar verða á æskulýðsnefnd Spretts

Nánar
pollar

Pollafimi

Pollafimi er námskeið fyrir yngstu knapana þar sem verður lögð áhersla á jafnvægi og ásetu með skemmtilegum æfingum meðan þeir eru hringteymdir. Sniðugt er fyrir 2 litla knapa að sameinast um einn hest. Það sem þarf er hestur, hnakkur eða gjörð með handföngum, snúrumúll eða hringtaumsmúll og vaður/langur taumur. Kennt

Nánar

Árshátíð Spretts 2026

Kæru félagsmenn, nú er komið að því að hittast og gleðjast saman á árshátíð félagsins sem haldin verður laugardaginn 14. nóvember. Húsið opnar með fordrykk kl. 18:00 og í kjölfarið boðið upp á steikarhlaðborð að hætti NOMY: • Grillaðar nautalundir í trufflumarineringu • Kryddjurtamarineruð kalkúnabringa • Brasseraður lambabógur í lambasoðsgljáa

Nánar

Reiðgötur lagfærðar næstu daga

Vekjum athygli á því að verið er að lagfæra reiðvegi í kringum okkar næstu daga og því má búast við umferð vörubíla og annarra vinnuvéla á reiðvegunum á milli kl. 8 og 16, einkum á Grunnuvatnaleiðinni Vífilstaðavatnsmegin.

Nánar

Félagshesthús Spretts – opið fyrir umsóknir

Hestamannafélagið Sprettur býður börnum, unglingum og ungmennum uppá aðstöðu í félagshesthúsi sínu, að Heimsenda 1, gegn vægu gjaldi. Í húsinu eru 6 eins hesta rúmgóðar stíur, sameiginleg hnakkageymsla, kaffistofa ásamt heitu vatni. Félagshesthúsið er hugsað fyrir börn, unglinga og ungmenni á aldrinum 10-21 árs og er ætlað að styðja við

Nánar
Scroll to Top