Skip to content

Einkatímar með Julie 8.-9.maí

8.-9.maí (miðvikudagur og fimmmtudagur) nk. mun fyrrum heimsmeistarinn Julie Christiansen bjóða upp á einkatíma í Samskiphöllinni/úti á keppnisvelli í Spretti.

Julie Christiansen er búsett í Danmörku þar sem hún starfar við reiðkennslu, tamningar og þjálfun. Hún er margfaldur heimsmeistari, danskur landsliðsknapi og hefur verið í fremstu röð knapa til margra ára. Meðal þeirra hesta sem Julie þjálfar þessa dagana eru Kveikur frá Stangarlæk og Viðar frá Skör ásamt mörgum fleirum. Julie hefur getið sér gott orð sem reiðkennari og sinnir reiðkennslu víðsvegar um Evrópu.

Kennt verður í 40mín einkatímum seinnipart miðvikudags og fimmtudags, tímasetningar í boði frá kl.14 til 21. Verð er 39.500kr. Verð fyrir yngri flokka er 34.500kr.

ATH! skráningartími er eingöngu fram til laugardagsins 23.mars, þeir sem hafa hug á að sækja námskeiðið skrái sig sem fyrst.

Skráning fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur og opnar kl.12:00 laugardaginn 16.mars.

Beinn hlekkur hér;

https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjgxOTM=