Fréttir og tilkynningar

Kórreið Sprettskórsins laugardaginn 9. maí 2026

Hittumst við Samskipahöllina. Ríðum þaðan kl. 12, til áningar rétt vestan við Gjárétt, tökum þar lagið og vætum kverkarnar, sé þörf á. Svalandi drykkir í boði, gegn hæfilegu gjaldi (posi ekki með vegna lélegs símasambands). Frá Gjárétt ríðum við svo til baka eftir drykklanga stund eftir krákustígum Heiðmerkur að eigin

Nánar

Viðrunarhólf fyrsta úthlutun 2026

Hér fyrir neðan má sjá fyrstu úthlutun viðrunarhólfa. Lagt var upp með að leigjendur fengu þau hólf sem þau hafa áður haft á leigu. Haft verður sérstaklega samband við þá sem hafa sótt um en fá ekki úthlutað hér fyrir neðan en ástæðan getur mögulega verið óskýr lýsing á fyrra

Nánar

Undirbúningur fyrir keppni III – ungir Sprettarar

Reiðkennarinn og íþróttadómarinn Ylfa Guðrún Svafarsdóttir býður upp á 30mín einkatíma fyrir unga Sprettara á þriðjudögum. Kennt verður á milli kl.15:00 og 19:30 í Samskipahöllinni og einnig úti á velli. Samtals 4 skipti. Kennsla hefst þriðjudaginn 19.maí og lýkur þriðjudaginn 9.júní. Möguleiki er að færa sig út á völl ef/þegar

Nánar

Spretts fatnaður

Æskulýðsnefnd Spretts og hestamannafélagið Sprettur bjóða ungum Spretturum til kaups, með niðurgreiðslu frá félaginu, merktan Spretts fatnað. Fullorðnum er einnig velkomið að panta sér fatnað á fullu verði. Allir skráðir ungir Sprettarar í félagatali fá niðurgreiðslu á fatnaði að andvirði 8.000kr frá hestamannafélaginu Spretti. Hér í skjalinu má sjá myndir

Nánar

Einkatímar hjá Árnýju Oddbjörgu í maí

Reiðkennarinn Árný Oddbjörg mun bjóða upp á 3 skipta námskeið í maí 2026. Kennt verður 13., 20. og 27.maí. Skráning opnar kl.12:00 fimmtudaginn 7.maí. Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur Námskeiðið verður kennt á miðvikudögum milli kl.15:00-21:00. Kennt verður í Samskipahöllinni en einnig er í boði að fara út á völl

Nánar

Einkatímar hjá Randi Holaker

Reiðkennarinn og keppnisknapinn Randi Holaker býður upp á einkatíma á fimmtudögum. Kennt er í 40mín í Samskipahöll eða úti á velli ef nemendur óska eftir. Námskeiðið hefst 14.maí og lýkur 4.júní. Samtals 4 skipti. Randi er afar reynslumikill reiðkennari og dómari, hefur m.a. verið yfirdómari Gæðingalistar í Meistaradeildinni undanfarin ár.

Nánar
Scroll to Top