Fréttir og tilkynningar

Einkatímar hjá Randi Holaker!
Reiðkennarinn og keppnisknapinn Randi Holaker býður upp á einkatíma á fimmtudögum. Kennt er í 40mín, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll. Námskeiðið hefst 12.mars og lýkur 23.apríl. Ekki er kennt 2.apríl, skírdag. Randi er afar reynslumikill reiðkennari og dómari, hefur m.a. verið yfirdómari Gæðingalistar í Meistaradeildinni undanfarin ár. Einnig hefur hún

Sýningarhópur ungra Sprettara
Sýningarhópur Spretts. Óskað er eftir ungum Spretturum til að setja saman sýningaratriði fyrir reiðhallarsýningar. Boðið verður upp á tvo mismunandi sýningarhópa, fyrir þá sem eru meira vanir og fyrir þá sem eru minna vanir. Meira vanir: Knapar sem geta riðið hratt á tölti, brokki og stökki. Geta riðið flóknar reiðleiðir.

Sönggleði Sprettskórsins
🎶 Sönggleði Sprettskórsins 🎶 Verið hjartanlega velkomin og syngið öll með, föstudaginn 13. mars í Samskipahöllinni – húsið opnar kl. 19 Söngur, skemmtiatriði og kvöldverður með hressu fólki. Hinn eini sanni Jóhann Sigurðarson kemur fram og stýrir samsöng. Kórinn syngur nokkur lög en síðan taka allir virkan þátt og syngja

Glódís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum sigruðu Sveiflu Slaktaumatölt – Staðan í liða- og einstaklingskeppninni
Önnur keppnisgrein vetrarins, Sveiflu slaktaumatölt í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts fór fram í gær. Það var gaman að sjá hversu mörg lögðu leið sína í Samskipahöllina um kvöldið og myndaðist skemmtileg stemning í stúkunni. Það var Sveifla sem styrkti þetta slaktaumatölt og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það. Sveifla er

Næstu námskeið!
Núna á næstu dögum verða kynnt þau námskeið sem verða í boði mars og apríl. Endilega fylgist vel með en mikill áhugi hefur verið á námskeiðum félagsins undanfarið. Að gefnu tilefni viljum við minna á að á öll þau námskeið sem hestamannafélagið Sprettur stendur fyrir, og auglýsir eingöngu á sínum

Niðurstöður í fimmgangi Blue Lagoon mótaraðarinnar
Keppni í fimmgangi í BLUE LAGOON mótaröð Spretts fór fram í gærkvöldi, miðvikudaginn 4. mars. Ungu knaparnir buðu upp á margar frábærar sýningar. BLUE LAGOON mótaröðin er orðin ein vinsælasta og stærsta mótaröðin sem haldin er hérlendis með að meðaltali um 110 skráningar á hverju móti. Vert að minnast þess
