Fréttir og tilkynningar

Viljayfirlýsing undirrituð
Halldór Victorsson formaður Spretts, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthúss og skólastofu á félagssvæði Spretts. Með uppbyggingu kennslu- og félagshesthúss verði til vettvangur sem m.a. getur boðið upp á þjónustu fyrir breiðari hóp með áherslu á félagslegan stuðning og sjúkraþjálfun

Einkatímar með Antoni Páli
Einkatímar með Antoni Páli 4. og 22.maí 2026 Einkatímar með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni mánudaginn 4. og föstudaginn 22.maí. Kennt verður í Samskipahöllinni. Kennsla fer fram milli kl.9-17. Verð fyrir tvo tíma er 36.000kr fyrir fullorðna, kennsla + reiðhallarleiga. Verð fyrir yngri flokka er 30.000kr. Skráning fer fram á abler.io

Úrslit Firmakeppni Spretts 2026
Firmakeppni Spretts fór fram að venju á sumardaginn fyrsta í björtu veðri úti á beinu brautinni. Mikið var af glæsilegum hrossum og knöpum en allra glæsilegasta parið, Kári Sveinbjörnsson og Gígjar frá Bakkakoti, fengu kassa af grænmeti frá Flúðasveppum En niðurstöður mótsins voru eftirfarandi: Pollar teymdir. Grétar Ingi Farestveit og

Þrautabrauta- og leikjadagur ungra Sprettara
Fimmtudaginn 30. apríl nk. verður haldinn Þrautabrautar- og leikjadagur Spretts í Samskipahöllinni! Dagurinn er ætlaður ungum Spretturum. Aldursviðmið eru pollar, börn og unglingar – en allir eru velkomnir! Sett verður upp hestaþrautabraut í Samskipahöllinni þar sem hver og einn mætir með sinn hest. Það má mæta í búningi ef stemming

Samskipadeildinin, Áhugamannadeild Spretts, 2026 lokið
Keppni í gæðingaskeiði í boði Útfararstofu Íslands fór fram í frábæru veðri og góðum velli í Sörla miðað við árstíma og miklar leysingar dagana áður laugardaginn síðastliðinn. Þar voru margir góðir sprettir farnir en að lokum var það Rósa Valdimarsdóttir og Lás frá Jarðbrú 1 sem stóðu uppi sem sigurvegarar

Einkatímar hjá Þorvaldi Árna
Reiðkennarinn og Sprettarinn Þorvaldur Árni Þorvaldsson býður upp á einkatíma í Húsasmiðjuhöll. Kennt verður á mánudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 27.apríl og lýkur 18.maí, samtals 4 skipti. Einungis 4 pláss í boði, kennt frá kl.17:00 til 19:40. Tímarnir henta fjölbreyttum hópi hesta og knapa, en Þorvaldur mun mæta hverjum og einum
