Fréttir og tilkynningar

Fjórir ungir Sprettarar í U21-landsliði Íslands

Fjórir ungir Sprettarar voru valdir í U21-landslið Íslands í hestaíþróttum fyrir starfsárið 2026–2027 en tilkynnt var um hópinn í gær, fimmtudaginn 8.okt. Stúlkurnar eru: Guðný Dís Jónsdóttir Elva Rún Jónsdóttir Herdís Björg Jóhannsdóttir Apríl Björk Þórisdóttir Sigvaldi Lárus Guðmundsson, landsliðsþjálfari U21, kynnti nýjan 20 manna landsliðshóp þann 8. október síðastliðinn.

Nánar

Keppnisárangur 2026

Sprettur óskar eftir upplýsingum um keppnisárangur Sprettara á árinu 2026. Óskað er eftir upplýsingum um árangur í öllum aldursflokkum fyrir keppnisárið 2026 – barna, unglinga, ungmenna og fullorðinsflokkum (atvinnumenn og áhugamenn), áhugamenn sérstaklega verðlaunaðir. Árangursupplýsingar eiga að sendast til sprettur(hja)sprettur.is á meðfylgjandi formi – https://sprettur.is/wp-content/uploads/2025/10/Stigautreikningar.xlsx  – í síðasta lagi fyrir

Nánar

Elva, Guðný og Herdís hljóta afreksstyrki ÍTG

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar hefur veitt þremur ungum Spretturum afreksstyrki í seinni úthlutun afreksstyrkja ársins 2026. Það eru þær Elva Rún Jónsdóttir, Guðný Dís Jónsdóttir og Herdís Björg Jóhannsdóttir sem hljóta 100.000kr afreksstyrk hver fyrir góðan árangur árið 2026. Til hamingju með styrkinn stelpur og góðan árangur á árinu.

Nánar

Móttaka á plasti

Fimmtudaginn 8. október, milli klukkan 18:00-19:00 verður tekið á móti plasti í gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll. Eingöngu verður tekið á móti heyrúlluplasti – ekki plasti utan af spæni, heynetum eða öðru rusli. Rúlluplastið má ekki vera í plastpokum. Biðjum við félagsmenn að virða þetta –

Nánar

Söngæfing Sprettkórsins á mánudaginn

Fyrsta söngæfing Sprettskórsins á nýju söngári er mánudaginn 28. september kl. 20:00 í Samskipahöllinni. Um 40 söngmenn eru í kórnum og nýir að bætast við. Þeir sem vilja slást í hópinn geta haft samband við Atla Guðlaugsson kórstjóra í síma 864-9019 eða í tölvupósti í atlitindar(hja)gmail.com.

Nánar
Scroll to Top