Fréttir og tilkynningar

Kallað eftir upplýsingum sigurvegara – saga Firmakeppni Spretts
Firmakeppni Spretts hefur um árabil verið fastur liður í félagslífi Spretts. Keppnin hefur notið mikilla vinsælda og fjöldi fyrirtækja og hópa tekið þátt í gegnum tíðina. Við yfirferð á gögnum félagsins hefur komið í ljós að ekki liggja fyrir fullnægjandi skráningar um sigurvegara firmakeppninnar í öllum flokkum, frá árin 2019.

Berglind hefur störf 1. mars
Berglind Guðmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Spretts mun koma í 50% starf hjá Spretti þann 1. mars næstkomandi og verður svo komin inn að fullu fyrir félagið 1. maí.

Þrígangsmót Spretts fellur niður
Því miður þarf að fella niður Þrígangsmót Spretts sem fara átti fram næsta föstudag 27. febrúar.

Forskoðun kynbótahrossa
Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður í hrossarækt hjá RML mun sjá um forskoðun kynbótahrossa í Samskipahöllinni 14. mars 2026 næstkomandi frá kl. 08-15 á vegum Hrossaræktarnefndar Spretts. Skráningargjald er kr. 3000 fyrir hross. Vinsamlegast sendið email á audur.stefansdottir(hjá)gmail.com þar sem fram kemur nafn og IS númer hests. Staðfesting á nánari tímasetningu verður síðan send þegar nær dregur viðburði. Hvetjum

Blue Lagoon – fimmgangur
Næsta keppni í Blue Lagoon mótaröðinni fer fram miðvikudaginn 4.mars í Samskipahöllinni. ATH! mótið hefst 17:00! Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í fimmgangi. Eftirtaldir flokkar verða í boði; Barnaflokkur (10-13ára), tveir flokkar í boði, minna vanir (F3) og meira vanir (F2). Unglingaflokkur (14-17ára), tveir flokkar

Köllum eftir framboðum í stjórn Spretts
Nú er búið að auglýsa aðalfund Spretts sem fram fer 18. mars. Kosið verður til formanns Spretts og einnig eru 3 sæti í stjórn Spretts til kjörs. Jónína Björk Vilhjálmsdóttir núverandi formaður ætlar ekki að gefa kost á sér áfram sem formaður félagsins en til viðbótar við formann þá hætta
