Fréttir og tilkynningar

Nefndarfólk í Spretti – sérkjör!
Sprettur er svo heppið félag að vera með starfrækta tuttugu nefndir sem sjá um að halda virkni og starfssemi félagsins gangandi. Þar sem vel hefur gengið að snúa við rekstri Spretts undanfarna mánuði þá langar stjórn að búa til opinbert umbunarkerfi fyrir allt duglega nefndarfólkið okkar og hafa þannig hvata

Taðmál
Taðmál Kópavogs, Garðabæjar og hestamannafélagsins Spretts eru enn óleyst. Fulltrúar sjálfbærninefndar Spretts hafa síðan í janúar verið að funda með fulltrúum Garðabæjar, Kópavogs og Heilbrigðiseftirlitsins um taðmálin. Útbúin var greinargerð sem inniheldur tillögur um nýtingu taðs frá félagssvæðinu til uppfyllingar, uppgræðslu og annarra góðra verka innan beggja bæjarfélaga. Jákvætt var

Æfinga kynbótasýning fyrir alla!
Fimmtudaginn 22. og 23.maí nk ætlar hestamannafélagið Sprettur, í góðu samstarfi við RML, að bjóða upp á æfinga-kynbótasýningu. Ákveðið hefur verið að opna sýninguna fyrir allan aldur. Slíkt hefur ekki verið í boði hérlendis áður en það getur reynst knöpum erfitt skref að stíga að mæta til dóms á kynbótabrautinni.

Einkatímar hjá Árnýju í maí
Reiðkennarinn Árný Oddbjörg mun bjóða upp á 3-4 skipta námskeið núna í maí. Skráning opnar kl.12:00 fimmtudaginn 8.maí. Skráning fer fram á abler.io. Á mánudögum verður boðið upp á tíma milli kl.14-18 og á miðvikudögum verður boðið upp á tíma milli 15:30-19:30. Um er að ræða sitthvort námskeiðið. Mánudags-námskeiðið hefst

Viðgerð á hurð 1 í Samskipahöll
Vinsamlegast athugið að verið er að vinna að viðgerð á hurð 1 í Samskipahöllinni núna milli kl.10-13 í dag, þriðjudag 6.maí. Á meðan á viðgerð stendur má eiga von á hávaða og truflun en Samskipahöllin er þó opin ef félagsmenn vilja nýta sér hana til þjálfunar.

Sjálfboðaliðar í grjóthreinsun keppnisvalla
Kæru félagar! Óskað er eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða við að hreinsa grjót af keppnisvöllum okkar. Við munum hittast við Samskipahöllina á morgun, þriðjudaginn 6. maí klukkan 17:00. Vonandi sjáum við sem flesta!