Fréttir og tilkynningar

Móttaka á heyrúlluplasti

Miðvikudaginn 14. maí milli klukkan 18:00-19:00 verður tekið á móti plasti í nýjum gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll. Eingöngu verður tekið á móti heyrúlluplasti – ekki plasti utan af spæni, heynetum eða öðru rusli. Rúlluplastið má ekki vera í plastpokum. Biðjum við félagsmenn að virða þetta

Nánar

Nefndarfólk í Spretti – sérkjör!

Sprettur er svo heppið félag að vera með starfrækta tuttugu nefndir sem sjá um að halda virkni og starfssemi félagsins gangandi. Þar sem vel hefur gengið að snúa við rekstri Spretts undanfarna mánuði þá langar stjórn að búa til opinbert umbunarkerfi fyrir allt duglega nefndarfólkið okkar og hafa þannig hvata

Nánar

Taðmál

Taðmál Kópavogs, Garðabæjar og hestamannafélagsins Spretts eru enn óleyst. Fulltrúar sjálfbærninefndar Spretts hafa síðan í janúar verið að funda með fulltrúum Garðabæjar, Kópavogs og Heilbrigðiseftirlitsins um taðmálin. Útbúin var  greinargerð sem inniheldur tillögur um nýtingu taðs frá félagssvæðinu til uppfyllingar, uppgræðslu og annarra góðra verka innan beggja bæjarfélaga. Jákvætt var

Nánar

Æfinga kynbótasýning fyrir alla!

Fimmtudaginn 22. og 23.maí nk ætlar hestamannafélagið Sprettur, í góðu samstarfi við RML, að bjóða upp á æfinga-kynbótasýningu. Ákveðið hefur verið að opna sýninguna fyrir allan aldur. Slíkt hefur ekki verið í boði hérlendis áður en það getur reynst knöpum erfitt skref að stíga að mæta til dóms á kynbótabrautinni.

Nánar
Árný Oddbjörg2

Einkatímar hjá Árnýju í maí

Reiðkennarinn Árný Oddbjörg mun bjóða upp á 3-4 skipta námskeið núna í maí. Skráning opnar kl.12:00 fimmtudaginn 8.maí. Skráning fer fram á abler.io. Á mánudögum verður boðið upp á tíma milli kl.14-18 og á miðvikudögum verður boðið upp á tíma milli 15:30-19:30. Um er að ræða sitthvort námskeiðið. Mánudags-námskeiðið hefst

Nánar

Viðgerð á hurð 1 í Samskipahöll

Vinsamlegast athugið að verið er að vinna að viðgerð á hurð 1 í Samskipahöllinni núna milli kl.10-13 í dag, þriðjudag 6.maí. Á meðan á viðgerð stendur má eiga von á hávaða og truflun en Samskipahöllin er þó opin ef félagsmenn vilja nýta sér hana til þjálfunar.

Nánar
Scroll to Top