Skip to content

Einkatímar Viðar Ingólfsson

Landsliðsknapinn Viðar Ingólfsson mun bjóða upp á einkatíma í Samskipahöllinni í Spretti. Viðar er hestamönnum að góðu kunnur, m.a. margfaldur Íslandsmeistari og Landsmótssigurvegari í tölti.

Um er að ræða tvo 45 mínútna einkatíma, kenndir þriðjudaginn 19.mars og þriðjudaginn 2.apríl. Tímasetningar í boði frá kl.17:00-21:30. Eingöngu 6 pláss í boði. Verð er 29.500kr.

Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 24.000kr. Sjá ákveðnar tímasetningar merktar yngri flokkum. Ef óskir eru um aðrar tímasetningar þá er hægt að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is.

Skráning hefst laugardaginn 2.mars kl.12:00 á sportabler.com/shop/hfsprettur (ATH! það gæti þurft að refresha sportabler síðuna kl.12:00 ef námskeiðin birtast ekki)