Skip to content

Einkatímar Julie Christiansen

Þriðjudaginn 15.október verður reiðkennarinn Julie Christiansen á Íslandi og hefur boðið áhugasömum Spretturum að sækja reiðtíma í Samskipahöllinni. 

Í boði eru einkatímar frá kl.12:00-17:00. Kennt verður í 40mín einkatímum. Verð fyrir timann er 20.000kr. 18.500kr fyrir yngri flokka. 

Julie Christiansen er búsett í Þýskalandi þar sem hún starfar við reiðkennslu, tamningar og þjálfun. Hún er margfaldur heimsmeistari, danskur landsliðsknapi og hefur verið í fremstu röð knapa til margra ára. Meðal þeirra hesta sem Julie hefur þjálfað eru Kveikur frá Stangarlæk og Viðar frá Skör ásamt mörgum fleirum. Julie hefur getið sér gott orð sem reiðkennari og sinnir reiðkennslu víðsvegar um Evrópu. 

Skráning fer fram á sportabler.com og opnar kl.12:00 mánudaginn 7.október.

https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzQxMDU=?