Skip to content

Einkatímar Anton Páll

Reiðkennarinn Anton Páll Níelsson býður upp á einkatíma í mars og apríl.

Um er að ræða tvo einkatíma sem kenndir eru fimmtudaginn 14.mars og miðvikudaginn 10.apríl. Kennsla fer fram í Húsasmiðjuhöll báða dagana milli kl.8-16. Verð fyrir fullorðna er 35.000kr.

Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 29.000kr. Knapar í yngri flokkum skrá sig með því að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is.Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is.

Skráning opnar laugardaginn 24.febrúar kl.12:00 á sportabler.com/shop/hfsprettur