Töltgrúppa!
Töltgrúppa! Töltgrúppa! Töltgrúppa!Nú fer töltgrúppan senn að tölta af stað! Enn er hægt að skrá sig – hér er beinn hlekkur á skráninguna í Sportabler;https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTY5NTU=?
Töltgrúppa! Töltgrúppa! Töltgrúppa!Nú fer töltgrúppan senn að tölta af stað! Enn er hægt að skrá sig – hér er beinn hlekkur á skráninguna í Sportabler;https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTY5NTU=?
Hestamennska í nútímasamfélagi krefst þess að við sem umsjónaraðilar hestsins tryggjum að hestinum sé kennt að bregðast við óvæntum og erfiðum aðstæðum og þar skiptir góður undirbúningur og jákvæð samskipti mestu máli. Lífsleikni felur í sér víðtæka nálgun á fjölbreyttu viðfangsefni þar sem tekið er mið af aldri og þroska nemandans (hestsins) og nauðsynlegt að þjálfari/umsjónaraðili hestsins hafi grunnþekkingu á skynjun, atferli og viðbrögðum hestsins til þess… Read More »Lífsleikninámskeið
Helgina 17.-19. febrúar nk. mun Sigvaldi Lárus Guðmundsson bjóða upp á 3ja daga helgarnámskeið. Kennt er á föstudagskvöldi í 30mín einkatíma og á laugardegi og sunnudegi í 40mín einkatíma. Á föstudagskvöldi er kennt í Húsasmiðjuhöll. Á laugardegi og sunnudegi er kennt í Samskipahöll, hólf 1. Sigvaldi er menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og hefur sinnt reiðkennslu við góðan orðstír í fjölda mörg ár. Sigvaldi er einnig… Read More »Helgarnámskeið með Sigvalda
Almennt reiðnámskeið með Magnúsi Lárussyni hefst fimmtudaginn 9.feb nk. Magnús er sprenglærður hestamaður, m.a. með meistaragráðu í hestafræðum. Kennt verður í 40mín einkatímum og er kennsla einstaklingsmiðuð. Kennt verður í Samskipahöll í hólfi 3 annan hvern fimmtudag, 6 skipti samtals, og eru tímasetningar í boði milli kl.15 og 22. Kennt verður eftirtalda daga; 9.feb., 23.feb., 9.mars, 23.mars, 6.apríl og 20.apríl. Skráning er hafin á Sportabler… Read More »Reiðnámskeið með Magnúsi Lárussyni
Töltgrúppan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hún samanstendur af hópi kvenna sem æfir saman og hefur gaman. Æft verður undir handleiðslu Guðrúnar Margrétar Valsteinsdóttur, reiðkennara. Lögð verður áhersla á stjórnun og ásetu knapa ásamt töltþjálfun og munsturreið. Kennt er á miðvikudagskvöldum kl.19:30 í Samskipahöllinni, 1x í viku. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 8.feb og lýkur um páskana. Verð er 25.000kr Skráning fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur
Járninganámskeið í Samskipahöllinni í Spretti helgina 27.-29.janúar nk. Kennarar verða þau Caroline Aldén og Sigurgeir Jóhannsson sem hafa járningar að fullri atvinnu. Caroline er frá Svíþjóð og hefur búið að íslandi síðan 2010 og hefur lokið 3.ára námi við járningarskólan Wången í Svíþjóð, Sigurgeir lauk námi frá sama skóla vorið 2021. Bæði hafa þau lengi verið í hestum og áhuginn fyrir járningum vaknaði snemma. Þau hafa mikla… Read More »Járninganámskeið
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem langar að bæta skilning sinn og getu á gæðingafimi. Eins gæti það hentað þeim knöpum sem langar að læra hvernig þeir geta notað hinar ýmsu æfingar til að mýkja hesta sína og bæta þá á gangtegundum. Kennt verður í 4 manna getuskiptum hópum í 45 mínútna reiðtímum og styttri einkatímum, að auki verða 2 bóklegir tímar og sýnikennsla. Knapar… Read More »Gæðingafimi námskeið
Vinsælu hestamennsku námskeiðin halda áfram í janúar og verða kennd fram á vor. Námskeiðið hefst sunnudaginn 22.janúar nk. Kennt er á tímabilinu kl.15:00-17:00, samtals 8 skipti. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu. Þátttakendur þurfa að hafa náð 10 ára aldri og mæta með sinn eigin hest. Áherslur námskeiðsins eru; áseta og stjórnun, gangtegundir, undirbúningur fyrir létta keppni og munsturreið. Líkt og áður… Read More »Hestamennsku námskeið vetur/vor 2023
Er ætlað öllum konum og stelpum (18 ára og eldri) sem hafa áhuga á að vera með í Töltgrúppunni í vetur. Einnig er þetta námskeið gott fyrir konur sem vilja komast að því hvort þær séu komnar nægilega langt í sinni reiðmennsku til að taka þátt í stóra hópnum eða jafnvel fyrir reynslubolta að dusta rykið af sjálfum sér og hestum sínum. Lögð er áhersla… Read More »Undirbúningsnámskeið Töltgrúppunnar
Vinsælu námskeiðin hennar Sigrúnar Sigurðardóttur hefjast 16.janúar nk. Námskeiðin eru almenn reiðnámskeið fyrir fullorðna sem vill styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn og læra að skilja hestinn betur. Þetta námskeið er frábært fyrir einstaklinga sem til dæmis vilja auka kjark og þor, byrja aftur eftir hlé í hestamennsku eða einfaldlega byrja með nýja hesta. Námskeiðið hefst þann 16.janúar 2023, samtals… Read More »Reiðnámskeið með Sigrúnu Sig!