Reiðnámskeið með Sigrúnu Sig!
Vinsælu námskeiðin hennar Sigrúnar Sigurðardóttur hefjast mánudaginn 20.janúar nk. Námskeiðin eru almenn reiðnámskeið fyrir fullorðna sem vilja styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn og læra að skilja hestinn betur.
Þetta námskeið er frábært fyrir einstaklinga sem til dæmis vilja auka kjark og þor, byrja aftur eftir hlé í hestamennsku eða einfaldlega byrja með nýja hesta.
Námskeiðið hefst þann 20.janúar 2025, samtals 8 skipti og lýkur námskeiðinu 10.mars. Kennt verður á mánudögum, hver tími er 45mín, hámark 4 saman í hóp. Þrjár mismunandi tímasetningar eru í boði; 15:15,16:00 og 16:45. Kennt verður í Samskipahöllinni, hólfi 3. Það getur verið að kennarinn breyti eitthvað til í hópum eftir getu.
Verð er 34.500kr.