Skip to content

Reiðnámskeið með Sigrúnu Sig í mars og apríl

Reiðámskeið með Sigrúnu Sig í mars og apríl

Vinsælu námskeiðin hennar Sigrúnar Sigurðardóttur halda áfram næsta mánudag, 20.mars. Námskeiðin eru almenn reiðnámskeið fyrir fullorðna sem vill styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn og læra að skilja hestinn betur.

Þetta námskeið er frábært fyrir einstaklinga sem til dæmis vilja auka kjark og þor, byrja aftur eftir hlé í hestamennsku eða einfaldlega byrja með nýja hesta.

Námskeiðið hefst þann 20.mars, samtals 5 skipti og lýkur námskeiðinu 24.apríl. Kennt verður á mánudögum, hver tími er 50mín, hámark 4 saman í hóp. Þrjár mismunandi tímasetningar eru í boði; 15:00,16:00 og 17:00. Kennt verður í Samskipahöllinni, hólfi 3, nema mánudaginn 27.mars en þá verður kennt í Húsasmiðjuhöll. Verð er 33.000kr.

Skráning er hafin á sportabler.com

https://www.sportabler.com/…/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTc3NjM=