Skip to content

Helgarnámskeið með Antoni Páli

Helgarnámskeið með reiðkennaranum Antoni Páli Níelssyni 27.-28.janúar.

Um er að ræða tvo einkatíma sem kenndir eru laugardaginn 27.jan og sunnudaginn 28.jan

Kennt verður í Samskipahöll hólf 3 á laugardegi og Húsasmiðjuhöll á sunnudegi.

Kennsla fer fram milli kl.8:15-16. Verð er 35.000kr fyrir fullorðna.

Knapar í yngri flokkum eru einnig hvattir til að skrá sig en þeir fá niðurgreitt hluta af námskeiðinu, verð fyrir yngri flokka er 29.000kr. Sjá ákveðnar tímasetningar merktar yngri flokkum. Ef óskir eru um aðrar tímasetningar þá er hægt að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is. Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda póst á fraedslunefnd@sprettarar.is.

Skráning er opin á sportabler.com/shop/hfsprettur

Beinn hlekkur hér; https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MjYyNjQ=?