Skip to content

Einka- og paratímar hjá Róberti Petersen!

Reiðkennarinn Róbert Petersen býður upp á einka- og paratíma í Samskipahöllinni í vetur. Kennslan er sérsniðin að þörfum og óskum hvers og eins nemanda/hesti.

Kennt verður á þriðjudögum í Samskipahöllinni. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 16.apríl og lýkur 7.maí, samtals 4 skipti.

Tímasetningar í boði milli kl.16:00 og 21:00.

Í boði eru paratímar, kennt er í 60mín. og einkatímar, kennt er í 40mín. Samtals 4 skipti. Verð fyrir einkatíma er 42.000kr og verð fyrir paratíma er 31.000kr

Skráning fer fram á sportabler.com/shop/hfprettur og opnar laugardaginn 13.apríl kl.12:00. Athugið að það þarf að „refresha“ /endurhlaða síðuna ef námskeiðið birtist ekki – eða þá að slá inn nafn námskeiðsins „Einka- og paratímar með Róberti Petersen í apríl og maí“ í leitarstikuna.