Bókanir og beiðnir

Smellið á örina til að opna viðkomandi bókunarform

Skráning í félagið

Reiðhallarlyklar

Til þess að fá lykil eða láta virkja lykil þá er best að senda póst á [email protected] með upplýsingum um nafn, kennitölu og hvaða áskrift/tímalengt verið er að panta. Allir notendur þurfa að vera skráðir fyrir sínum lykli, vera skráðir félagsmenn og skuldlausir við hestamannafélagið Sprett.

Lágmarksáskrift á reiðhallarlykli eru 3 mánuðir.
Almennur reiðhallalykill er opinn virka daga frá klukkan 6:15 -8:30 og frá kl. 12-23:50 um helgar frá 6:15-23:50
Árs reiðhallarlykill verður opinn 6:15-23:50 alla daga.
Ekki er leyfilegt að þeir/þær sem eru saman í hesthúsi noti eingöngu einn lykil nema þegar um er að ræða fjölskyldulykil. Fjölskyldulykill gildir fyrir hjón/pör og börn þeirra undir 18 ára aldri.

Verð fyrir lykla veturinn 2024-2025
Stofngjald fyrir hvern útgefin reiðhallarlykil er 5.000kr.
Lykill: 3 mánuðir 12.000kr
Lykill: 6 mánuðir 20.000kr
Árslykilll: 12 mánuðir 26.000kr
Fjölskyldulykill af árslykli: 12 mánuðir 40.000kr (aðeins er um að ræða einn lykil)

Bókun á reiðhöllum Spretts

Bókanir á einkatímum í reiðhöllum Spretts fer fram með því að fylla út formið hér að neðan.
Í boði er að bóka lausa tíma:
Öll Húsasmiðjuhöll
Eitt hólf í Samskipahöll
Alla Samskipahöllina virka daga milli kl.6-9 á morgnanna og milli kl.22-00 á kvöldin
Alla Samskipahöllina um helgar milli kl.6-9 á morgnanna og kl.20-00 á kvöldin

Hægt er að bóka í lágmark klukkustund alla Samskipahölllin en Húsasmiðjuhöll og hólf í Samskipahöll í hálftíma.

Ein klukkustund í einu hólfi í Samskipahöllinni kostar 8.000 kr.
Ein klukkustund í allri Húsasmiðjuhöllinni kostar 10.000 kr.
Ein klukkustund í allri Samskipahöllinni kostar 30.000 kr

Ofangreind verð eiga einungis við fyrir hestatengda viðburði. Ef fólk ætlar að fá til sín kennara í einkatíma verður fólk að leigja sér pláss óheimilt er að vera með reiðkennara með sér á opnum almennum tíma reiðhallanna.

Scroll to Top