Vísindaferð hrossarræktarfélags Spretts

Árleg vísindaferð Hrossaræktarfélags Spretts verður farin 16. mars. Lagt af stað frá Samskipahöllinni kl 9 í rútubíl. Fyrst verða heimsóttir hrossaræktendur og bústjórar að Hestheimum og Sumarliðabæí Rangárþingi ytra. Síðan verður snæddur hefðbundinn hádegisverður á Hellu. Eftir hádegi verður viðkoma á leynistöðum sem kynntir verða nánar á leiðinni.

Fargjald ræðst af fjölda þáttakenda.

Skemmtiferð sem aldrei hefur klikkað, vonumst til að sjá semflesta.

Skráning hjá: ha******@mi.is  í síðasta lagi fimmtud. 14. mars kl 20.

Stjórn Hrossaræktarfélags Spretts

Scroll to Top