Viltu taka þátt í starfi Spretts?

Miðvikudaginn 12.febrúar kl.20 munu formenn nefnda innan hestamannafélagsins Spretts segja frá nefndarstörfum á opnum félagsfundi í veislusalnum í Samskipahöllinni.

Allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í skemmtilegu félagsstarfi eru hvattir til að mæta, kynna sér starfið og skrá sig í þá nefnd sem þeir hafa áhuga á að starfa í, en nefndirnar eru fjölmargar og mismundandi. Léttar veitingar í boði.

Scroll to Top