Knapamerkin eru stigskipt nám í hestamennsku þar sem nemandinn er leiddur stig af stigi í gegnum námið í takt við getu hans og áhuga. Þar með er lagður grunnur að árangri og öryggi í hestamennskunni hvort sem hún verður stunduð til frístunda eða sem keppnisíþrótt í framtíðinni.
Námið er bæði bóklegt og verklegt.
Hér er um að ræða námskeið í verklegri kennslu Knapamerki 1 og Knapamerki 2 fyrir yngri flokka. Ef fullorðnir hafa áhuga á að sækja nám í Knapamerkjunum mega þeir endilega hafa samband á [email protected].
Knapamerki 1
Verkleg kennsla hefst þriðjudaginn 19.nóv. og lýkur 21.des. Kennt verður á þriðjudögum í Húsasmiðjuhöll kl.17:30-18:15 og á fimmtudögum í Samskipahöll kl.18:00-18:45. Samtals 10 tímar með prófi. 4-5 nemendur í hóp.
Lokaverkefni í KM1 fer fram laugardaginn 21.desember í Húsasmiðjuhöll. Kennari verður Guðrún Margrét Valsteinsdóttir, reiðkennari frá Hólaskóla. Verð fyrir KM1 er 23.500kr. með prófi. Allar nánari upplýsingar á [email protected]. Skráning er opin og fer fram á sportabler.com.
Hér er beinn hlekkur: https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzQ3MTY=
Knapamerki 2
Verkleg kennsla hefst þriðjudaginn 19.nóv. og lýkur 21.des. Kennt verður á þriðjudögum í Húsasmiðjuhöll kl.18:15-19:00 og á fimmtudögum í Samskipahöll kl.18:45-19:30. Einnig verður kennt laugardaginn 7.desember kl.10-11. Samtals 12 tímar með prófi. 4-5 nemendur í hóp. Lokaverkefni í KM1 fer fram laugardaginn 21.desember í Húsasmiðjuhöll. Kennari verður Guðrún Margrét Valsteinsdóttir, reiðkennari frá Hólaskóla. Verð fyrir KM1 er 29.000kr. með prófi. Allar nánari upplýsingar á [email protected]
Skráning er opin og fer fram á sportabler.com. Hér er beinn hlekkur á skráningu: https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzQ3Mzk=