Úrslit í gæðingakeppni og stigahæstu í Blue Lagoon

Sunnudaginn 12. apríl fór fram síðasta mót vetrarins í Blue Lagoon mótaröðinni 2026 og keppt var í gæðingakeppni.

Gífurlega góð þátttaka var í gæðingakeppni og þá sérstaklega í barna- og unglinga flokki. Í barnaflokki meira vanir voru þau jöfn Aron Einar Ólafsson á Skandal frá Varmalæk 1 og Svala Björk Hlyndsdóttir á Eindísi frá Auðholtshjáleigu með einkunina 8,63. Fór svo að Aron Einar og Skandall urðu hlutskarpari eftir sætaröðun.
Stigahæsti knapinn í mótaröðinni í ár varð Helga Rún Sigurðardóttir.
Í barnaflokki minna vanir var met skráning og það fór svo eftir glæsilegar sýningar hjá þessum kláru börnum sem eru mörg hver að stíga sín fyrstu skref í alvöru keppni að Eva Hrönn Ásmundsdóttir og gæðingurinn Rafn frá Melabergi tóku 1 sætið með einkunina 8,76. Stigahæsti knapinn í börn minna vön var Eva Hrönn Ásmundsdóttir.
Í unglingaflokki meira vanir var það Aron Dyröy Guðmundsson og Ísafold frá Kirkjubæ sem sigruðu með einkunnina 8,58. Stigahæsti knapinn í mótaröðinni í unglingaflokki var Erla Rán Róbertsdóttir.
Í unglingaflokki minna vanir var það Erlín Hrefna Arnarsdóttir á Ástríki frá Traðarlandi sem unnu með einkunnina 8,45.
Stigahæsti knapinn í unglingaflokki minna vanir var Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir.
Í ungmennaflokki sigraði Helga Rakel Sigurðardóttir á Baldri frá Melbakka með einkunnina 8,33 Stigahæsti knapinn í mótaröðinni í ungmennflokki var Anika Hrund Ómarsdóttir

Við þökkum styrktaraðilum okkar kærlega fyrir þeirra framlag í mótaröðinni, þeir eru Blue Lagoon , Sign, Lífland, Josera, Noma, Heimaskipurlag, Fóðurblandan, Góa og fleiri. Að mótinu standa sjálfboðaliðar í Spretti og án þeirra væri ekkert mót – færum við þeim bestu þakkir fyrir þeirra vinnu í vetur. Að lokum viljum við þakka BLUE LAGOON innilega fyrir þeirra myndarlega stuðning við þessa mikilvægu mótaröð fyrir unga fólkið okkar í hestaíþróttinni.
BLUE LAGOON mótaröðin hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hlekkur í mótahaldi hjá ungu kynslóðinni og gefur þeim mörgum hverjum tækifæri á að feta sín fyrstu spor í keppni. BLUE LAGOON nefndin þakkar keppendum og aðstandendum kærlega fyrir þeirra þátttöku og við hlökkum til að sjá ykkur að ári!

Niðurstöður voru eftirfarandi:
Barnaflokkur meira vanir
A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Aron Einar Ólafsson Skandall frá Varmalæk 1 Geysir 8,63
2 Svala Björk Hlynsdóttir Eindís frá Auðsholtshjáleigu Fákur 8,63
3 Jón Guðmundsson Pabbastelpa frá Ásmundarstöðum 3 Geysir 8,56
4 Helga Rún Sigurðardóttir Morgunroði frá Sauðárkróki Fákur 8,55
5 Kristján Fjeldsted Kraginn frá Firði Borgfirðingur 8,47
6 Guðrún Lára Davíðsdóttir Dökkvi frá Eylandi Fákur 8,46
7 Eyvör Sveinbjörnsdóttir Hvinur frá Hveravík Sprettur 8,40
8 Alexander Þór Hjaltason Tónn frá Hestasýn Fákur 8,38

Barnaflokkur minna vanir
A úrslit
1 Eva Hrönn Ásmundsdóttir Rafn frá Melabergi Geysir 8,76
2 Katla Dís Hannesdóttir Sigurpáll frá Varmalandi Geysir 8,59
3 Jóhanna Lea Hjaltadóttir Ópera frá Hestasýn Fákur 8,48
4 Embla Sirén Matthíasdóttir Gróði frá Naustum Fákur 8,41
5 Harpa Rún Sveinbjörnsdóttir Straumur frá Víðinesi 1 Sprettur 8,40
6 Líf Einarsdóttir Isenbuegel Frami frá Efri-Þverá Fákur 8,32
Unglingaflokkur meira vanir
A úrslit
1 Aron Dyröy Guðmundsson Ísafold frá Kirkjubæ Geysir 8,58
2 Sólveig Þula Óladóttir Djörfung frá Flagbjarnarholti Sörli 8,53
3-4 Ragnar Dagur Jóhannsson Stofn frá Akranesi Sprettur 8,46
3-4 Sigríður Fjóla Aradóttir Ekkó frá Hvítárholti Hörður 8,46
5 Emma Rún Arnardóttir Gletta frá Eystra-Fróðholti Sleipnir 8,45
6 Kári Sveinbjörnsson Gígjar frá Bakkakoti Sprettur 8,38
Unglingaflokkur minna vanir
A úrslit
1 Erlín Hrefna Arnarsdóttir Ástríkur frá Traðarlandi Hörður 8,45
2 Alexía Björt Kibler Stjarna frá Morastöðum Hörður 8,31
3-4 Katrín Diljá Andradóttir Valur frá Brekkubæ Fákur 8,25
3-4 Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir Fegurð frá Skíðbakka III Sprettur 8,25
5 Björney Anna Aronsdóttir Már frá Árbæ Fákur 7,94
6 Karítas Hlíf F. Friðriksdóttir Sýn frá Bergi Sörli 7,85

Ungmennaflokkur
A úrslit
1 Helga Rakel Sigurðardóttir Baldur frá Melbakka Sörli 8,33
2 Valdís Anna Valdimarsdóttir Sólbjörg frá Fagralundi Sóti 8,19

Scroll to Top